Writer skjárinn

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita
Mynd 1: Aðal vinnuskjárinn í Writer
Aðal vinnuskjárinn í Writer sést á mynd 1. Valmyndum og hnappastikum er lýst á öðrum stað á þessum vef. Nú skulum við athuga ýmislegt annað sem sést á vinnuskjánum.

Stöðulínan

Stöðulínan í Writer gefur manni upplýsingar um skjalið sem maður er að vinna í og auðveldar aðferðir til að breyta ýmsu í sambandi við skjalið. Frá vinstri til hægri eru atriðin þessi.

Síðunúmer
Sýnir númer þeirrar blaðsíðu sem verið er að vinna á, raðnúmer hennar (ef það er annað) og fjölda síðna í skjalinu. Til dæmis, ef maður byrjaði að númera síður upp á nýtt á þriðju blaðsíðu, þá væri sú síða númer 1, en raðnúmer hennar væri 3.
Hægt er að stökkva beint á bókamerki í skjalinu með því að hægri-smella á þetta atriði, en þá opnast listi yfir öll bókamerki í skjalinu og maður smellir á það sem maður vill fara á.
Til að stökkva á ákveðna síðu í skjalinu getur maður tvísmellt á þetta atriði. Þá opnast Lóðsinn. Þar getur maður smellt í Page Number reitinn og ritað númer þeirrar síðu sem maður vill fara á.
Síðustíll
Sýnir hvaða stíl er verið að nota á síðuna. Til að skipta um síðustíl er hægri-smellt á þetta atriði. Þá opnast listi yfir síðustíla og hægt er að velja nýjan stíl með því að smella á hann.
Til að breyta síðustíl, þá er hægt að tvísmella á þetta atriði. Þá opnast talgluggi fyrir síðustíla.
Tungumál
Sýnir tungumál þess texta sem valinn er.
Ef smellt er á þetta atriði, þá opnast gluggi sem býður upp á að velja annað tungumál fyrir textann eða fyrir efnisgreinina sem bendillinn er staddur í. Það er einnig hægt að velja None til að textinn verði ekki tekinn með í yfirlestri eða More til að opna talglugga með aðgerðum fyrir stök tákn og texta.
Ritunarhamur
Ef smellt er hér, þá velur maður á milli innskrifunar og yfirskrifunar þegar maður ritar inn texta.
Valhamur
Smelltu hér til að velja á milli venjulegrar val aðferðar (STD), aukinnar val aðferðar (EXT), uppsöfnunarvals (ADD) og kassavals (BLK). Þessar val aðferðir verða ræddar í kaflanum „Unnið með texta“ á blaðsíðu 31.
Vistun
Ef hér er sýnd stjarna, þá hefur skjalið ekki verið vistað frá því síðustu breytingar voru gerðar á því. Stjarnan hverfur þegar skjalið er vistað.
Stafræn undirskrift
Ef stafræn undirskrift hefur verið sett í skjalið, þá kemur táknmynd hér Mynd:Icon-dig-sig.jpg sem sýnir það. Hægt er að tvísmella á táknmyndina til að skoða heimildina.
Svæðis- og hlutaupplýsingar
Þegar bendillinn er staddur á sérsniðnu svæði eða hlut (eins og mynd), þá koma hér upplýsingar um þetta svæði eða hlut.
Mynd 2: Uppröðun við skoðun: einfalt, hlið við hlið, bók
Uppröðun við skoðun
Ef smellt er á einhvern þessara hnappa, þá raðast síðurnar í skjalinu upp á mismunandi hátt á skjánum, sem stakar síður, hlið við hlið eða eins og í bók (mynd 2).
Súmm
Til að breyta stærðinni á skjalinu á skjánum er hægt að nota sleðann til að stækka eða minnka það að vild, smella á + og – hnappana, eða smella á raufina á sleðanum. Einnig er hægt að hægri-smella á prósentutöluna og velja úr litlum lista þá stækkun sem maður vill, eða tvísmella á hana og velja af talglugga þá stærð sem maður vill sjá.

Skjal skoðað

Í Writer er hægt að skoða skjal á nokkra vegu: í Prentútliti, Vefútliti og á Fullum skjá. Til að velja þessar aðferðir er smellt á View á valstikunni og rétt útlit valið. (Þegar maður velur Fullan skjá, þá er hægt að fara til baka í Prentútlit eða Vefútlit með því að ýta á Esc lykilinn á lyklaborðinu.)

Mynd 3: Súmm og skoðun valin
Þegar maður er í Vefútliti, þá er hægt að nota sleðann á stöðulínunni, en hann hefur þá bara áhrif á stafastærðina, ekki blaðið, og þá sjást engar síðuskiptingar. Þegar maður er í Prentútliti, þá er hægt að nota bæði sleðann og uppröðunarhnappana á stöðulínunni.


Einnig er hægt að velja View > Zoom af valstikunni til að sjá Zoom & View Layout talgluggann. Þar er hægt að stilla sömu valatriði og á stöðulínunni. Við Vefútlit eru flest atriðin í þessum talglugga þó óvirk.

Stokkið hratt í gegnum skjal

Auk þeirra aðferða sem áður er lýst til að færa sig um skjal, þá er einnig hægt að nota Lóðsinn, sem fjallað var um á blaðsíðu 21.

Mynd 4: Navigation hnapparnir
Í Writer er hægt að opna Navigation hnappastikuna með því að smella á litla Navigation hnappinn neðarlega til hægri í glugganum fyrir neðan lóðréttu skrunröndina (mynd 4).
Mynd 5: Navigation stikan
Á Navigation hnappastikunni sjást tól fyrir allar aðferðir við færslur sem hægt er að finna í Navigator, ásamt nokkrum aukalega (til dæmis niðurstöður úr Find skipun).

Smelltu á það tól sem þú vilt nota, Nú færa Fyrra og Næsta hnapparnir (bæði á hnappastikunni sjálfri og á skrunröndinni) mann fljótt á fyrra eða næsta atriði sem valið er. Þetta er mjög gagnlegt ef maður vill finna atriði eins og atriðisorð, sem erfitt er að sjá í textanum. Nöfn tólanna sjást í upplýsingaröndinni neðst á stikunni og breytast þegar tól eru valin, t.d. Next Graphic, Next Bookmark, eða Continue search forward.

Tenglar