Úr OpenOffice.is
Hvað er Writer?
Writer er ritvinnslan í OpenOffice.org (OOo) pakkanum. Auk allra venjulegra aðgerða sem hægt er að framkvæma í ritvinnslu (orðabók, samheitaorðabók, sjálfvirk bandstrik, sjálfvirk leiðrétting, finna og skipta, sjálfvirkt efnisyfirlit og atriðisorðaskrá, samsteypur og annað), þá er eftirfarandi mikilvæg atriði einnig að finna í Writer:
- Sniðmát og stílar
- Öflug síðuformun með römmum, blaðadálkum og töflum
- Innsetning eða tenging við grafík, töflureikna og annað
- Innbyggð teiknitól
- Stjórnskjöl — til að grúppa saman safn margra skjala í eitt
- Tenging við gagnagrunn, þ.m.t. heimildalista
- Vistun á PDF formi, ásamt bókamerkjum
- Og ýmislegt annað
Allar síður sem tengjast Writer