Vistun töfluskjala
Úr OpenOffice.is
Hægt er að nota þrjár aðferðir til að vista töfluskjöl.
- Með valslánni
- Smelltu á File og veldu Save.
- Með hnappastikunni
- Smelltu á Save hnappinn
á hnappastikunni. Ef búið er að vista skrána og henni hefur ekkert verið breytt eftir það, þá er þessi hnappur óvirkur
- Með lyklaborðinu
- Með því að gera CTRL+S.
Hafi skjalið ekki verið vistað áður þá opnast „Save as“ glugginn. Þar þarf að gefa skjalinu nafn og staðsetja það á diskinum.
Athugaðu Hafi skjalið verið vistað áður þá vistast sú útgáfa af skjalinu sem er á skjánum yfir þá útgáfu sem er á diskinum án þess að spyrja. Ef þú vilt vista skjal á nýjum stað eða undir nýju nafni þarftu að velja File > Save As.

