Vinnusvæði í Draw

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita
Mynd 1: Aðal vinnusvæðið í Draw
Aðal hlutar vinnusvæðisins í Draw eru sýndir á mynd 1.

Hægt er að umkringja teikniblaðið með hnappastikum og upplýsingasvæðum. Fjöldi og staðsetning hnappastika sem sjást eru mismunandi eftir verkefni og vilja notandans. Þess vegna gæti þín uppröðun verið önnur en hér sést. Til dæmis setja margir aða teiknistikuna (Drawing Toolbar) vinstra megin við vinnusvæðið, ekki neðst eins og sýnt er á mynd 1.

Hægt er að skipta teikningu á milli margra blaða. Slíkar teikningar á mörgum síðum eru oftast notaðar sem fremsetning á efni. Síðurúðan (Pages Pane) vinstra megin í Draw glugganum gefur yfirsýn yfir síðurnar sem þú býrð til. Ef þessi rúða sést ekki, þá er hægt að opna hana með því að nota View > Page Pane.

Efnisyfirlit

Mælistikur

Mynd 2: Mælistikur í Draw glugganum
Mynd 3: Mælieinungum breytt

Þú ættir að sjá mælistikurnar (stikur með tölum á) efst og vinstra megin á vinnusvæðinu. Þær sýna stærð hluta sem valdi eru á síðunni (tvöfaldar gráar línur sem sýndar eru á myndinni hér til hliðar). Þegar ekkert er valið, þá sýna stikurnar staðsetningu bendilsins, sem hjálpar við að staðsetja hluti. Það er líka hægt að nota mælistikurnar til að meðhöndla handföng hluta og stýrilínur og þar með auðvelda staðsetningu hluta. Spássíur á teikniblaðinu er líka sýndar á mælistikunum. Það er hægt að breyta spássíunum beint á mælistikunum með því að draga þær til með músinni.

Til að breyta mælieiningunum á stikunum er hægri-smellt á aðra stikuna. Stikurnar geta haft mismunandi mælieiningar.

Stöðulínan

Mynd 4: Stöðulínan

Stöðulínan er neðst í vinnusvæðinu. Miðhluti stöðulínunnar sýnir upplýsingar sem eru sérstakar fyrir Draw forritið.

Athugaðu
Staðsetningar og stærðir eru gefin í þeirri mælieiningu sem valin er fyrir
forritið, ekki endilega þeirri sem sýnd er á mælistikunni. Til að skilgreina
mælieiningu sem nota á er farið á Tools > Options > OpenOffice.org Draw >
General, þar sem einnig er hægt að breyta stærðarhlutföllum (Scale) síðunnar.

Hnappastikur

Hægt er að sýna eða fela hnappastikurnar eftir þörfum hvers og eins. Til að sýna eða fela hnappastiku er nóg að fara á View > Toolbars. Á valmyndinni sem kemur upp er svo smellt á nafn þeirrar hnappastiku sem maður vill fela eða sýna.

Hægt er að velja hvaða hnappar eru á hnappstikum. Á View > Toolbars valmyndinni er hægt að velja Customize, og síðan smella á Toolbars flipann, velja þá hnappastiku sem maður vill breyta og síðan velja þá hnappa sem maður vill hafa á henni.

Mynd 5: Stika dregin á flot

Margir hnappar á hnappastikum eru merktir með lítilli ör við hliðina á þeim Mynd:Flettior.jpg. Þessi ör sýnir að viðkomandi hnappur hefur ýmsa auka möguleika. Smelltu á örina og þá kemur upp undirvalmynd eða önnur hnappastika þar sem auka möguleikarnir eru sýndir (sjá mynd 5). Flestir hnappar sem eru merktir með svona ör geta orðið fljótandi hnappastikur.

Til að breyta undirvalmynd í fljótandi hnappastiku smellir maður á efsta hluta undirvalmyndarinnar og dregur hana út á skjáinn. Þar sleppir maður músarhnappnum. Hægt er að festa fljótandi hnappastikur í kantinn á vinnusvæðinu þar sem aðal hnappastikurnar eru.

Smelltu á örina á titilslá fljótandi hnappastika til að sjá viðbótaraðgerðir:

Mynd 6: Viðbótaraðgerðir á fljótrandi stiku

Tólum sem hægt er að nota á ýmsum hnappastikum er lýst lauslega hér fyrir neðan. Ekki er víst að útlit hnappanna sé eins í öllum útgáfum forritsins, stýrikerfisins og þeirri sjáuppsetningu sem þú hefur valið í Tools > Options > OpenOffice.org > View.

Staðal hnappastika

Staðal hnappastikan lítur svona út:

Mynd:Draw-standard-stika.jpg

Hún er eins í öllum forritum OpenOffice.org.

Strik og Fylling hnappastika

Þessi stika gefur manni færi á að breyta aðal eigindum teiknihlutar, litum og þykkt á strikum og lit og gerð fyllingar.

Mynd:Draw-strikogfylling-stika.jpg

Ef það, sem valið er, er texti, þá breytist stikan eins og sýnt er hér fyrir neðan og verður svipuð þeirri sem er í Writer.

Mynd:Draw-texta-stika.jpg

Teikni hnappastika

Þetta er mikilvægasta stikan í Draw. Á henni eru öll nauðsynlegustu tól sem nýtast til að teikna alls konar form, bæði regluleg og óregluleg, og til að stjórna stöðu þeirra á síðunni.

Mynd:Draw-teikni-stika.jpg

Litastikan Til að sjá Litastikuna er hægt að velja View > Toolbars > Color Bar. Þá sést þessi stika neðst í vinnusvæðinu:

Mynd:Draw-lita-stika.jpg

Með þessari stiku er hægt að breyta litum á atriðum í teikningu á fljótlegan hátt. Fyrsti kassinn á stikunni er glær (enginn litur).

Hægt er að nálgast mörg sérhæfð litaspjöld í Draw og líka breyta einstökum litum eins og hentar hverjum og einum. Það er gert með því að nota Area talglugganna með því að velja Format > Area eða málningardollutáknið á Strik og fylling stikunni.

Mynd 7: Litaflipinn á Area talglugganum

Á Area talglugganum velur maður flipann sem merktur er Colors (mynd 7).

Til að sækja annað litaspjald er smellt á Load Color List hnappinn (í hringnum). Í valglugganum sem upp kemur getur þú valið um nokkur staðal OOo litaspjöld (sem öll hafa undirnafnið *.soc). Til dæmis er web.soc litaspjaldið, sem er sett saman fyrir myndir sem eiga að vera á vefsíðum. Litirnir verða þá réttir á skjám sem hafa í það minnsta 256 lita upplausn.

Litavalskassinn gerir manni einnig kleyft að breyta stökum litum með því að breyta tölugildunum í innsláttarreitunum hægra megin við litaspjaldið. Hægt er að nota litasamsetningar sem kallaðar eru CMYK (Cyan, Magenta, Yellow, Black), RGB (Red, Green, Blue) eða HSB (Hue, Saturation, Brightness).

thumbrightMynd 8: Litur stilltur innEf smellt er á Edit hnappinn opnast sér talgluggi þar sem hægt er að stilla staka liti (sjá mynd 8). Margar aðrar aðferðir eru mögulegar í þessum glugga.

Á neðri hluta gluggans er hægt að setja inn tölugildi fyrir RGB og CMYK samsetningar ásamt HSB (Hue, Saturation and Brightness) samsetningunni.

Litaprufurnar neðst til hægri sýna litinn sem er núna á hlutnum á blaðinu (vinstri) og hvernig hann myndi breytast miðað við það sem valið er (hægri).

Kostastikan Á kostastikunni er hægt að virkja og taka af ýmislegt sem aðstoðar við teikningar. Það er ekki sjálfgefið að kostastikan sjáist. Til að ná í hana þarf að velja View > Toolbars > Options. Mikilvægustu kostirnir sem maður þarf að læra að nota strax eru merktir með rauðum hring. Aðgerðirnar sem fylgja hverjum hnappi eru tíundaðar í töflunni hér fyrir neðan.

Mynd:Draw-options.jpg

Hnappur Aðgerð
Mynd:Draw-options-rotation.jpg Fara í snúningsham eftir að smellt er á hlut
Mynd:Draw-options-dis-grid.jpg Sýna (eða fela) grind
Mynd:Draw-options-disp-guides.jpg Sýna (eða fela) stýrilínur
Mynd:Draw-options-disp-moving.jpg Sýna (eða fela) stýrilínur við flutning
Mynd:Draw-options-snap-grid.jpg Festast við grind
Mynd:Draw-options-snap-guides.jpg Festast við hjálparlínur
Mynd:Draw-options-snap-margins.jpg Festast við spássíur
Mynd:Draw-options-snap-borders.jpg Festast við brúnir hluta
Mynd:Draw-options-snap-points.jpg Festast við punkta á hlutum
Mynd:Draw-options-quick-ed.jpg Heimila textavinnslu
Mynd:Draw-options-text-only.jpg Velja bara textasvæði
Mynd:Draw-options-double-text.jpg Tvísmella til að laga texta
Mynd:Draw-options-simple-handles.jpg Einföld handföng
Mynd:Draw-options-large-handles.jpg Stór handföng
Mynd:Draw-options-create.jpg Gera hluti með eigindi
Mynd:Draw-options-exit-groups.jpg Fara út úr öllum grúppum
Tenglar