Vinnuskjárinn í Calc
Úr OpenOffice.is
Þegar maður opnar Calc, þá er upphafsskjárinn svipaður því sem sést á mynd 1.Efnisyfirlit |
Titilstikan og Valstikan
Titilstikan efst sýnir nafn skjalsins sem verið er að vinna í. Ef skjalið er nýtt, þá er nafnið Untitled X, þar sem X er tala. Þegar þú vistar skjalið í fyrsta sinn, þá ertu beðinn um að rita nafn.
Undir Titilstikunni er Valstikan. Þegar maður smellir á atriði á henni, þá opnast valmynd með ýmsum skipunum og möguleikum.
Hnappastikur
Undir Valslánni eru sjálfgefnar þrjár hnappastikur: Staðalstikan, Formunarstikan og Formúlustikan.Með hnöppunum á þessum stikum er hægt að finna öll algengustu tólin, skipanirnar og föllin sem nota þarf í venjulegu töflureiknisskjali.
Ef músarbendillinn er látinn voka yfir einhverjum hnappnum, þá kemur upp lítill kassi með stuttum leiðbeiningum um hvað þessi hnappur gerir. Hægt er að nálgast nákvæmari hjálp á ensku með því að velja Help > What's This? og síðan láta músarbendilinn yfir hnapp án þess að smella á hann.
Reitirnir tveir lengst til vinstri á Formunarstikunni eru Stafagerð (Font Name) og Stafastærð (Font Size – sjá mynd 2). Ef eitthvað sést í þessum reitum, þá er það stillingar á stafagerðum og stærð í þeim reit eða svæði sem er virkt.
Ef smellt er á litlu örina við hliðina á reitunum, þá opnast valmynd þar sem hægt er að velja nýjar stafagerðir og stafastærðir.
Formúlustikan
Vinstra megin á Formúlustikunni (sjá mynd 3) er lítill textareitur sem kallast Nafnreitur, en í honum er stafur og tala, eins og t.d. D7, sem segir til um hvaða reitur er virkur.Hægra megin við nafnreitinn er Fallálfurinn (Function Wizard) og Summu- og Fallhnapparnir. Ef smellt er á Fallálfinn, þá opnast talgluggi þar sem hægt er að leita í lista yfir tilbúin föll, sjá hvaða breytur fylgja þeim og hvaða niðurstöður koma út úr þeim miðað við gefnar forsendur.
Summuhnappurinn setur formúlu inn í þann reit sem er virkur, sem reiknar út summu þeirra talna sem eru í reitunum fyrir ofan hann eða vinstra megin við hann ef engar tölur eru fyrir ofan.
Fallhnappurinn setur sama-sem merki inn í virka reitinn og innsláttarlínuna á Formúlustikunni og gerir þar með virka reitinn tilbúinn til að taka við formúlu.
Þegar formúla er rituð í reit, þá breytast Summu- og Fallhnapparnir í Hætta við og Samþykkja hnappa
.
Innihald virka reitsins (gögn, formúla eða fall) sjást á innsláttarlínunni á Formúlustikunni. Það er hægt að breyta innihaldi reitsins þar eða í reitnum sjálfum. Til að breyta í innsláttarlínunni, þá er nóg að smella á viðkomandi stað í línunni og síðan rita inn breytingar. Til að breyta í reitnum sjálfum er tvísmellt á hann.
Stakir reitir
Aðal vinnusvæði skjágluggans er samsett úr reitum töflureiknisins sem mynda grind, þar sem hver reitur verður til þar sem dálkar og línur skerast.
Fyrir ofan dálkana og vinstra megin við línurnar eru gráir kassar með bókstöfum og tölum. Þetta eru dálka- og línunúmer. Dálkarnir byrja á A og fara til hægri, en línurnar byrja á 1 og fara niður.
Reitirnir bera nöfn sem eru samsett úr dálka- og línunúmerum: D7, B23, DF714. Þessi nöfn koma fram í nafnreitnum á Formúlustikunni. Hægt er að láta dálka- og línunúmer hverfa með því að velja View > Column & Row Headers.
Blaðflipar
Neðst í Calc glugganum eru blaðfliparnir (sjá mynd 4). Með þessum flipum er hægt að opna mismunandi blöð í hverri skrá. Það blað sem er með hvítan flipa er það sem er virkt.Ef smellt er á annan flipa, þá opnast það blað og verður virkt. Hægt er að virkja mörg blöð í einu með því að halda niðri CTRL lyklinum á lyklaborðinu og smella á flipana.
Stöðulína
Neðst í hverjum Calc glugga sést stöðulína sem gefur ýmsar upplýsingar um skjalið sem er opið.Frá vinstri til hægri er þetta á stöðulínunni:
- Blaðnúmer: Virka blaðið og fjöldi blaða í skjalinu.
- Síðustíll: Stíllinn sem er í notkun í skjalinu. Hægt er að breyta stílnum með því að tvísmella á þennan reit.
- Súmm: Hversu mikið skjalið er súmmað. Hægt er að tvísmella til að breyta súmminu.
- Valaðferð: Smelltu hér til að velja á milli venjulegrar val aðferðar (STD), aukinnar val aðferðar (EXT) og uppsöfnunarvals (ADD).
- Breytingaflagg: Ef hér er sýnd stjarna, þá hefur skjalið ekki verið vistað frá því síðustu breytingar voru gerðar á því. Stjarnan hverfur þegar skjalið er vistað.
- Stafræn undirskrift: Ef stafræn undirskrift hefur verið sett í skjalið, þá kemur táknmynd hér sem sýnir það. Hægt er að tvísmella á reitinn til að setja inn undirskrift.
- Fall fyrir valið svæði: Sjálfgefið er að sýna summu þeirra reita sem valdir eru. Hægt er að skipta um fall með því að hægri-smella á reitinn og velja um:
- Average: tekur meðaltal af valda svæðinu
- CountA: telur reiti í svæðinu sem eru ekki tómir
- Count: telur reiti í svæðinu með tölugildi
- Maximum: sýnir hæsta gildi á svæðinu
- Minimum: sýnir lægsta gildi á svæðinu
- Sum: sýnir summu talna á svæðinu
- None: sýnir ekkert.

