Villuleit og viðgerð
Úr OpenOffice.is
Það er algengt að við sjáum einhverskonar villur í Calc. Þrátt fyrir þau tól sem við höfum til að aðstoða okkur við að slá inn formúlur, er tiltölulega auðvelt að gera mistök. Calc er með þrjú tól sem nýtast til að villugreina formúlur: Villuboð, litakóða og Spæjarann (Detective).
Efnisyfirlit |
Villuboð
Einfaldasta tólið til að aðstoða við villuleit eru villuboðin. Villuboð koma fram í reitnum sem formúlan er í (eða í formúluálfinum ef hann er í notkun).
Villuboðin eru venjulega þriggja stafa tala á bilinu 501 til 527 og stundum er það texti eins og NAME?, REF eða VALUE.
Númer villunnar birtist í reitnum og stutt skýring á villunni kemur hægra megin niðri á stöðulínunni.
Flestar villur stafa af því að ílag formúlunnar er ekki rétt en þó geta villur líka stafað af takmörkunum í Calc eða stillingum hans.
Villuboðin eru ekki beint notendavæn og geta hugsanlega hrætt nýja notendur. Nokkrar algengar villur eru:
- #NAME? (525): Tilvísun ekki rétt, vísað í nafn sem ekki er til . Ef við gerum til dæmis formúluna =tekjur-A1 og fáum þessa villu þá þýðir það að enginn reitur í skjalinu heitir „tekjur“.
- #REF (525): Dálkur, lína eða síða sem vísað er í er ekki til.
- #VALUE (519): Ílag formúlu er ekki á réttu formi. Ef formúlan =A1+A2 gefur þessa villu bendir það til þess að annarhvor reiturinn sem vísað er í innihaldi ekki tölu (líklega texta).
- #DIV/0 (532): Deilt með núlli.
- 509: Reiknimerki, eins og samasemmerki, vantar.
- 510/511: Tölu eða breytu vantar, til dæmis ef tvö reiknimerki eru saman =1+*2. Villan 511 kemur ef um er að ræða innbyggt fall í Calc sem þarf fleiri breytur. Til dæmis þarf COUNTIF fallið tvær breytur. Það er svæðið sem á að skoða og hvað á að telja, ef aðeins annað er tekið fram t.d. =COUNTIF(A2:A9) þá kemur villa 511.
- 502: Stærðfræðileg villa. Til dæmir reynt að taka kvaðratrót af mínustölu.
Litakóðun tilvísana
Litakóðun er tól sem nýtist mjög vel ef upp koma villur. Þegar þú ferð inn í formúlu sem þegar hefur verið keyrð þá sést að tilvísanirnar í formúlunni eru mismunandi á litinn og svo kemur rammi í sama lit utan um viðkomandi reit. Ef þú slærð inn formúluna =A1+A2 og ýtir á ENTER þá leggur Calc saman tölurnar í þessum tveim reitum. Ef þú opnar svo reitinn aftur með því að tvísmella á hann sérðu að A1 í formúlunni verður blátt og blár rammi kemur utan um reitinn A1, sama gerist með reitinn A2, nema hann er rauður. Calc notar átta mismunandi liti, ef tilvísanirnar eru fleiri þá byrjar röðin aftur.
Spæjarinn
Í mjög stórum og flóknum töfluskjölum nýtist litakóðunin ekki eins vel. Í þeim tilfellum er hægt að nota Tools > Detective. Spæjarinn er tól sem nýtist til að skoða hvaða reitir eru notaðir sem breytur fyrir formúlur (breyta, precedents) eða í hvaða formúlum tölur eru notaðar (fylgibreyta, dependents). Það er líka hægt að nota það til að rekja villur, merkja ógild gögn (þ.e. gögn sem ekki eru á réttu formi fyrir formúluna).
Spæjarinn er notaður þannig að þú velur reit sem inniheldur formúlu. Ferð svo í Tools > Detective. Í skjalið birtast línur með punkt á endanum sem bendir á breytuna og ör á hinum endanum sem benda á formúluna. Línurnar sýna eins konar flæði í skjalinu.
Ef þú vilt rekja breytur formúlu byrjar þú á að velja reitinn sem inniheldur formúluna veldu Tools > Detective > Trace Precedents. eða ýttu á SHIFT+F7 á lyklaborðinu. Myndir 1 til 3 sýna einfalt dæmi um þetta.
Oft er hægt að sjá strax hver villan er eins og í þessu tilfelli þar sem reiturinn C16 inniheldur bæði tölu og bókstaf. Með því að fjarlægja bókstafinn er villan horfin.
Í sumum öðrum tilfellum er ekki eins auðvelt að sjá hvað er að og þá þurfum við að rekja villuna. Við getum notað Tools > Detective > Trace Error, til að finna þann reit sem veldur villunni.
Dæmi: Algengar villur
#DIV/0 Deilt með núlli
Þessi villa stafar af því að deilt er með núlli eða með tómum reit. Það er auðvelt að komast hjá því að þessi villa komi upp. Á mynd 126 er tafla yfir fjölda sjúklinga á sjúkraliða. Þetta er reiknað með því að deila dálk C upp í dálk D. Ef það hins vegar vantar upplýsingar um fjölda sjúkraliða þá er sú tala 0 eða reiturinn er tómur. Þá kemur #DIV/0 úr útreikningum. Þetta er nokkuð algengt, hér er ekki beint um villu að ræða heldur er skjalið þannig uppbyggt að við þessar aðstæður kemur #DIV/0. Hægt er að komast hjá þessu með því að nota skilyrðisfallið IF(). Með því að setja fallið =IF(C2>0;B2/C2;"Gögn vantar") Þá losnum við við villuna og fáum í staðinn setninguna „Gögn vantar“. Í stuttu máli þá virkar þetta fall þannig: Ef C3 er stærra en 0, þá á að reikna B3 deilt með C3, Annars birta setninguna „Gögn vantar“.Það er líka hægt að sleppa orðunum í síðasta lið fallsins og setja tómar gæsalappir í staðinn (=IF(C2>0;B2/C2;"")) Þá verður reiturinn auður.

