Verkefni 9: Úr umferðarlögum

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita


Efnisyfirlit

Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:

  • Opnar skjal
  • Breytir töfluneti í dálkatöflu
  • Setur áherslumerki
  • Býrð til númeraðan lista
  • Býrð til númeraðan lista með undirnúmerum

Skammstafanir

1.Opnaðu skjalið 09verk og vistaðu það inn á þitt svæði.

2.Í fyrsta hluta eru nokkrar töflur sem hafa verið gerðar með töfluneti. Þú átt að breyta þessum töflum þannig að þær séu dálkatöflur með punktalínu milli liða.

Byrjaðu á að velja fyrstu töfluna alla. (Einfaldast að vera með bendilinn í töflunni og gera CTRL+A tvisvar)

Farðu svo í Table > Convert > Table To text. Þessi skipun tekur burt töflunetið og setur eitthvert tákn á milli dálka í staðinn. Veldu að hafa Tabs milli dálka

Töflu breytt í texta

Taflan ætti nú að hverfa en textinn er áfram og með TAB merki á milli

Tafla verður texti

3.Endurtaktu þetta á allar töflurnar á síðu 1.

4.Eyddu burt öllum auðum línum.

5.Veldu nýju töfluna og dragðu hana inn um 3 cm frá vinstri með Format > Paragraph > Indents & Spacing.

6.Hafðu töfluna áfram valda og settu hægrijafnað dálkahak við 14 cm.

7.Veldu núna alla töfluna nema fyrstu línuna (skammstöfun og merking) og settu punktalínu á milli með Format > Paragraph > Tabs. (Sjá verkefni 5, lið 8).

8.Feitletraðu fyrstu línuna í töflunni og settu eina auða línu undir hana.

9. Breyttu fyrirsögninni í Arial, 22pt, feitletrað og litla hástafi (Small Caps).

Taflan með nokkrum skammstöfunum

Tveir listar

10. Settu áherslumerki (krossa) á hnútalistann á síðu tvö: Veldu listann og smelltu á Bullets hnappinn Mynd:Icon-bullets.jpg‎ . Það koma væntanlega svartir punktar fyrir framan hvern lið í listanum.

11. Farðu í Format > Bullets and Numbering og þar í Bullets flipann og veldu krossa:

Kross settur á Bullets

12. Stækkaðu fyrirsögnina í 16pt og skáletraðu hana.

Hnútalistinn klár.

13. Breyttu km2 í km2 í töflunni yfir stærstu lönd (sjá verkefni 8).

14. Veldu alla töfluna yfir stærstu lönd og settu vinstrijöfnuð dálkahök í 3,5 cm og 6,5 cm. Ekki hafa áhyggjur af því þó línan yfir Ísland komi ekki rétt út, þú lagar það seinna.

15. Veldu núna alla töfluna nema efstu línuna og tvær neðstu línurnar (punktana og Ísland) og settu númer á þær með Numbering hnappnum Mynd:Hnappur-numbering.png.

16. Merktu núna alla töfluna (Líka punktana og Ísland) og lagaðu staðsetningu númerana með því að draga neðri þríhyrninginn á stikunni á 2 cm og svo efri þríhyrninginn á 1 cm.

Taflan löguð til.

Veldu efstu línuna í töflunni og hafðu báða þríhyrninga stikunnar á 2 cm.

Nú ætti taflan að líta rétt út.

Taflan með löndunum.

Umferðarlögin

17. Stækkaðu fyrirsögn umferðalaganna í 20pt feitletrað. Skáletraðu líka undirfyrirsögnina.

18. Veldu allan textann fyrir neðan og settu á hann númer með Numbering hnappnum Mynd:Hnappur-numbering.png.

19. Veldu Bullets and Numbering hnappinn á Bullets and Numbering stikunni (eða farðu í Format > Bullets and Numbering).

Bullets and Numbering hnappurinn

Veldu Outline flipann í glugganum sem kemur og veldu þriðja möguleikann í neðri röðinni. Outline er númeraröð með undirliðum og í fyrstu sérðu enga breytingu á töflunni.

Outline flipinnn

Mynd:Upplysingar.jpgBullets and Numbering stikan ætti að birtast þegar þú ert í texta sem er númeraður eða með áherslumerkjum. Ef ekki, þá þarftu að fara í View > Toolbars > Bullets and numbering.

20. Veldu fyrri þrjár línurnar sem eiga að vera undirlínur (þ.e. línurnar sem eru núna númer 2-4) og lækkaðu þær í tign með hnappnum á Bullets and Numbering stikunni. Sjá lið 19.

21. Gerðu eins fyrir seinni þrjár línurnar sem eiga að vera undirlínur (númer 3-5).

22. Merktu fyrri undirlínurnar og lagaðu útlitið á þeim með því að draga neðri þríhyrninginn á stikunni á 2,5 cm og þann efri á 1,5 cm.

23. Gerðu eins fyrir seinni undirlínurnar eða notaðu útlitsafritun (Format Paintbrush) til að afrita útlitið þangað.

24. Að lokum skalt þú breyta listanum þannig að greinarnar verði númer 5 og 6. Hafðu bendilinn í línu sem er númeruð 1 eða 2 (ekki 1.1 eða 2.1) og farðu í Bullets and Numbering gluggann (með hnappnum á stikunni eða Format > Bullets and Numbering).

Farðu í Options flipann og stilltu Start At... á 5.

Loka útlit á umferðalagatöflunni

Þetta verkefni á .PFD formi.

Tenglar