Verkefni 8: Kynning

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita
Þetta verkefni er enn í vinnslu

Kynning á sjálfum þér.

Búðu til glærusýningu sem inniheldur 4 glærur sem fjalla um þig.

1.Opnaðu Impress og vistaðu skjalið sem 08Kynning.

2.Notaðu Verkgluggann til að ákveða hvernig form þú vilt hafa á glærusýningunni. Fyrir fyrstu glæru skaltu velja Title Slide eða kynningarglæruna.

3.Á þessa glæru skrifarðu síðan Kynning í efri textakassann og síðan nafnið þitt í neðri textakassann. Þar með ertu búinn að búa til þína fyrstu glæru.

4.Þá skaltu búa til næstu glæru með því að hægri smella á glæruna sem er kominn í Glærugluggann og velja New Slide.

5.Fyrir þessa glæru skaltu velja Title, Clipart, Text í Verkglugganum. Inn á glæruna skaltu síðan skrifa nafnið þitt efst, í hægri kassann fæðingarár og dagsetningu, fæðingarstað og grunnskóla.

6.Í vinstri kassann skaltu síðan setja inn mynd af þér. Til þess að gera þetta þarftu að tvísmella á litlu myndina í kassanum og finna síðan myndina þína og þá á myndin að birtast sjálfkrafa. Þú getur síðan minnkað hana og stækkað eftir því sem þarf.

7.Þá skaltu búa til nýja glæru alveg eins og áður og í þetta skipti skulum við nota Title, Text glæruformið í Verkglugganum. Skrifaðu nokkur orð um áhugamálin

8.Á þessa glæru eiga að koma hreyfingar. Til að þess að fá hreyfingu skaltu smella á Custom Animation í Verkglugganum. Síðan skaltu setja fyrsta atriðið í blokk og velja þá hreyfingu sem þú vilt hafa á textanum þ.e.a.s. Hvernig textinn birtist.

9.Síðan skaltu búa til aðra glæru þar sem útlitið á að vera Title, Text, Clipart. Þar skaltu setja inn mynd af Verkmenntaskólanum. Skrifaðu svo nokkur orð um hvers vegna þú valdir VMA, brautina sem valdir og uppáhaldsfagið.

10.Farðu aftur á fyrstu glæruna og settu bakgrunn á glæruna. Hægri smelltu á glæruna í Vinnusvæðinu og veldu Slide > Slide Design í fellivalsmyndinni. Smelltu síðan á Load og þar geturðu síðan valið mismunandi bakgrunna undir Presentation Backgrounds.

11.Vistaðu Glærusýninguna og lokaðu.

Þessi síða á .PDF formi fyrir Windows

Tenglar