Verkefni 7: VMA

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita
Þetta verkefni er enn í vinnslu

Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:

  • Býrð til glærusýningu þar sem þú nýtir þér þá kunnáttu sem þú ert búin að afla þér varðandi vinnu í OpenOffice.org Impress

VMA

1.Þú átt að búa til glærusýningu með 5 glærum um Verkmenntaskólann á Akureyri. Vistaðu undir heitinu 07VMA á þínu svæði.

2.Notaðu heimasíðu skólans til að búa til sýninguna.

3.Fyrsta glæran á að vera kynningarglæran þar sem eingöngu kemur fram nafnið á glærusýningunni og nafnið þitt. Settu inn merki skólans eins og sýnt er á fyrirmyndinni. Merkið finnurðu með því að nota Google myndaleitina og vistar merkið inn á þínu svæði. Síðan smellir þú á Insert > Picture > From File...

4. Bakgrunnur á öllum glærum á að vera Characters with glow

5.Á glæru 2 eiga að koma fram almennar upplýsingar um skólann eins og hvenær hann tók til starfa, hvað stunda margir nemendur nám við skólann, hver er skólameistari skólans og aðstoðarskólameistari.

6.Á glæru 3 á að vera úrdráttur um skólareglur skólans með áherslupunktum.

7.Á glæru 4 á að vera úrdráttur um tölvunotkun og reglur um tölvunotkun með áherslupunktum.

8.Á glæru 5 á að koma fram upplýsingar um Þórdunu og hverjir eru í stjórn félagsins með áherslupunktum.

9.Settu hreyfingu á texta.

10.Mundu að skoða glærusýninguna áður en þú vistar og lokar.

11.Vistaðu og lokaðu.

Þessi síða á .PDF formi fyrir Windows

Tenglar