Verkefni 7: Meðalhæð eftir aldri

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita


Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:

  • Opnar skjal og vistar undir nýju nafni
  • Setur inn töflu
  • Lagar breidd dálka í töflu
  • Miðjar töflu á síðu
  • Lagar útlit töflu með litum og línum

Meðalhæð eftir aldri

1. Opnaðu skjalið sem þú gerðir í verkefni 6 og vistaðu það með nafninu 07verk inn á þitt svæði.

2. Settu inn töflu sem er 5 x 2 fyrir neðan töfluna sem fyrir er og hafðu 4 línur á milli.

3. Skrifaðu inn textann eins og sýnt er.

Meðalhæð eftir aldri0-5 ára 5-10 ára
strákarstelpurstrákarstelpur

4. Hafðu bendilinn í töflunni og töflustikuna opna.

Töflustikan

Mynd:Upplysingar.jpgEf töflustikan kemur ekki þarftu að fara í View > Toolbars > Table. Á þessari stiku eru allflestar stillingar sem á þarf að halda í sambandi við töflur

5. Þú þarft að byrja á því að sameina reiti (sjá fyrirmynd í lið 7). Það gerir þú með því að velja reitina sem á að sameina og smella á sameiningarhnappinn á töflustikunni (ATH sameiningar hnappurinn er ekki virkur nema 2 eða fleiri reitir séu valdir).

Reitir í töflu sameinaðir

6. Gerðu eins með reitina 0-5 ára og 5-10 ára, nema að nú velur þú samhliða reiti.

7. Taflan ætti að líta svona út núna:

Svona ætti taflan að líta út

Nú þarf að laga textann til. Byrjaðu á að hækka efri línuna aðeins með því að draga til skilin á milli línanna.

Linuhæð löguð í töflu

8. Nú sérðu að textinn liggur efst í línunni en hann á að vera miðjaður upp/niður og hægri/vinstri. Þetta lögum við með því að velja þá reiti sem á að breyta og notum hnappana á töflustikunni til að miðja upp/niður og venjulega miðjunarhnappinn til að miðja hægri/vinstri.

Reitir miðjaðir

9, Hægrijafnaðu Strákar og Stelpur í aftari dálkunum og feitletraðu eins og á fyrirmyndinni.

Lokaútlit töflunnar

Þetta verkefni á .PDF formi

Tenglar