Verkefni 6: Verðu víða um heim
Úr OpenOffice.is
ÞESSI SÍÐA ER Í VINNSLU Verkefni 6
Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:
• Býrð til nýtt skjal • Setur inn töflu • Lagar breidd dálka í töflu • Miðjar töflu á síðu • Bætir línu í töflu • Lagar útlit töflu með litum og línum
1. Búðu til nýtt skjal í Writer og vistaðu það undir nafninu 06verk inn á þitt svæði.
2. Stilltu spássíur þannig að hægri og vinstri séu 1cm og uppi og niðri séu þær 3 cm Athugaðu líka að blaðsíðustærðin sé A4.
3. Sláðu inn textann „Veður víða um heim kl 8:00 17. júlí 2009“ og ýttu tvisvar á Enter.
4. Búðu til töflu sem er 5 línur og 4 dálkar. Það er hægt að gera á tvennan hátt. Einfaldasta leiðin er að nota töfluhnappinn. Með því að ýta á örina við hliðina á hnappnum getur þú valið með músinni hversu stóra töflu þú vilt gera.
Smelltu á örina og dragðu músina yfir reitina til að ákvarða stærð töflunnar. Hún á að vera 4 x 5.
Gráðumerkið er á lyklaborðinu við hliðina á „1“ í næstefstu röðinni. Það virkar þannig að þegar ýtt er á það kemur ekkert á skjáinn en þegar ýtt er á C þá birtist merkið. Þetta er vegna þess að þessi sami hnappur er líka notaður til að gera stafi eins og å Å.
5. Sláðu inn eftirfarandi upplýsingar í töfluna. Byrjaðu í fyrsta reitnum og sláðu inn “Staður” ,ýttu svo á TAB og bendillinn hoppar þá í næsta reit. Staður Vindátt og hraði í m/s Skýjafar Hitastig Reykjavík A3 Léttskýjað 15°C Akureyri Logn Heiðskírt 22°C Egilsstaðir N5 Þoka 9°C New York NA4 Heiðskírt 25°C
6. Við viljum bæta London og Kaupmannahöfn við töfluna okkar en þá þurfum við að bæta fleiri línum í hana. Bættu við einni línu neðst í töfluna. Það er einfaldast að gera með því að hafa bendilinn í síðasta reitnum (lengst til hægri í neðstu línu) og ýta á TAB. Þá kemur ný lína. Sláðu eftirfarandi inn í nýju línuna:
Kaupmannahöfn A2 Léttskýjað 20°C
7. London á að koma ofan við New York sem þýðir að við þurfum að bæta annarri línu inn í töfluna. Hafðu bendilinn í New York línunni og farðu í Table > Insert >Rows... Þá opnast gluggi.
Hér þarftu að velja hversu margar línur þú vilt setja inn og hvort línan á að koma ofan við eða neðan við þá línu sem bendillinn er í (Before og After).
8. Sláðu inn upplýsingarnar um London í nýju línuna og þá ætti taflan að líta svona út:
Staður Vindátt og hraði í m/s Skýjafar Hitastig
Reykjavík A3 Léttskýjað 15°C
Akureyri Logn Heiðskírt 22°C
Egilsstaðir N5 Þoka 9°C
London SV3 Hálfskýjað 17°C
New York NA4 Heiðskírt 25°C
Kaupmannahöfn A2 Léttskýjað 20°C
9. Nú þurfum við að laga útlit töflunnar. Byrjaðu á því að laga breidd dálkanna með því að draga til línurnar á milli dálkanna með músinni.
10. Miðjaðu töfluna á síðunni með því að fara í Table > Table Properties og stilla þar á Center í Table flipanum (passaðu að bendillinn sé í töflunni). 11. Veldu alla dálka nema þann fremsta og hægrijafnaðu textann. 12. Gerðu fyrstu línuna og fyrsta dálkinn feitletraðan. 13. Settu dökkan bakgrunnslit (Background Color) á fyrstu línuna og ljósan bakgrunnslit á aðra hverja línu fyrir neðan. Leggðu á minnið nafnið á dökka litnum sem þú notar, þú þarft að nota hann aftur í næsta lið. 14. Farðu í Table > Table Properties og í Borders flipann. Hafðu engar línur í töflunni nema ramma utan um hana og hafðu hann 1pt og í sama lit og bakgrunnsliturinn á línu 1. Sjá myndina hér fyrir neðan.
15. Veldu fyrirsögnina og breyttu henni í Arial, 24pt, feitletrað. Farðu svo í Format > Character og settu skugga á hana og hafðu hana rauða.

