Verkefni 6: Hæð og þyngd
Úr OpenOffice.is
Verkefni 6
Í þessari æfingu lærir þú að:
- Forma fyrirsagnir þannig að þær komi í tveimur línum
- Nota fallálfinn
- Breyta aukatölum
- Breyta legu síðu
1. Sæktu skjalið 06Hæð og þyngd og vistaðu það á þínu svæði.
2. Gefðu síðunni heitið Hæð og þyngd.
3. Skrifaðu inn fyrirsagnirnar sem sýndar er á myndinni.
4. Feitletraðu
og hægrijafnaðu
fyrirsagnirnar í B1, C1 og textana í reitum A11 til A13.
5. Hafðu breiddina á dálki A 2,20 cm en B og C dálkunum 1,60 cm.
6. Láttu fyrirsagnirnar í B1 og C1 birtast í tveimur línum. Til þess að gera þetta þarftu að hægri smella á fyrirsögnina og fara í Format cells -> Alignment og haka þar við Wrap Text Automatically.
7. Næstu skaltu setja breiða grunnlínu fyrir ofan reiti A11, B11 og C11. Til þess að gera þetta skaltu setja A11, B11 og C11 í blokk, hægri smella og velja Format Cells -> Borders. Þar skaltu síðan velja 4,00 punkta línu og smella á línuna fyrir ofan kassann eins og sýnt er á myndinni. Síðan skaltu smella á Ok.
8. Núna skaltu finna hæð á þeim nemanda sem er hæstur í bekknum. Til þess áttu að nota Fallálfinn. Vertu í reit B11 og smelltu á
og finndu formúluna MAX og skrifaðu inn reitina sem að þú ert að vinna með: B2:B10 og smelltu síðan á OK. Þá er nóg fyrir þig að afrita formúluna yfir í reit C11 til að finna þyngsta nemandann líka.
9. Síðan skaltu finna út hæð og þyngd minnsta nemandans með sama hætti nema hvað núna þarftu að finna formúlu sem heitir MIN og afrita síðan þá formúlu yfir í reit C12.
10.Í reit B13 skaltu finna út hver er meðalhæð og meðalþyngd á nemendunum með sama hætti og þá þarftu að finna formúlu sem heitir AVERAGE og setja síðan inn sömu tölur og áður og afrita þær yfir í reit C13.
11.Þegar meðaltal heilla talna er fundið koma oft fram aukastafir/tugabrot eins og sést á okkar tölum. Til að taka aukastafina skulum setja þessa reiti B13 og C13 í blokk og smella á tugabrotshnappinn
tvisvar og þá eiga tugabrotin að hverfa. Ef við viljum hinsvegar hafa tugabrot á þá getum við smellt hnappinn við hliðina á
.
12.Næst ætlum við að raða nöfnunum í stafrófsröð. Til þess þurfum við að setja reiti A2 til C10 í blokk og smella á
hnappinn. Þá raðar hún öllum nöfnunum í stafrófsröð með tilheyrandi upplýsingum með.
Hnappurinn raðar síðan öfugt frá Ö til A.
ATH: Þegar þið veljið texta fyrir röðun þarf að passa þrennt:
- Að allt sé valið sem á að raða
- Að ekki sé valið eitthvað sem ekki á að raða.
- Að svarti ferningurinn sé í þeim dálki sem raða á eftir.
Þegar þú velur það sem á að raða í þessu verkefni verður þú að byrja valið í A2 og draga niður í C10. Þá verður svarti ferningurinn eftir í A-dálki og Calc raðar þá A-dálk í stafrófsröð.
Ef þú myndir draga músina frá C10 til A2 þá myndi svarti ferningurinn verða eftir í C dálki og þá myndi Calc raða eftir upplýsingunum í C-dálki.
13.Næst skulum breyta legu verkefnisins í heild og setja haus og fót á verkefnið. Til að gera það skaltu fara í Format > Page... > Page og haka við Landscape til að hafa legu síðunnar lárétta.
14.Settu haus og fót á verkefnið og miðjaðu það á síðunni. Sjá Verkefni 1: Bílakostnaður
15.Farðu næst í prentskoðun
til að sjá hvernig verkefnið lítur út.









