Verkefni 6: Einkatölvur

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita
Þetta verkefni er enn í vinnslu

Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:

  • Búa til glærusýningu
  • Setur bakgrunn á glærur
  • Breyta stafagerð og stærð
  • Notar inndrátt á texta með áherslupunktum
  • Feitletrar, skáletrar ,lita og undirstrikar orð
  • Setur haus og fót með blaðsíðutali
  • Setur hreyfingar á glærur
  • Setur myndir á glærur

Einkatölvur

1.Búðu til glærusýningu með fjórum glærum og vistaðu hana á þínu svæði undir heitinu 06einkatolvur.

2.Skrifaðu inn textann eins og hann er sýndur á myndunum. Mundu að hafa rétta útlitið valið í verkglugganum á glærunum title slide osfrv.

3.Hafðu fyrirsagnir á glærunum alla í leturgerðinni Elephant stærð 44. Til að breyta leturgerð skaltu muna að ljóma fyrirsögnina og smella síðan á litlu örina við hliðina á leturheitinu og þar geturðu valið úr mörgum leturtegundum.

4.Athugaðu að á glæru þrjú þarftu að setja inndrátt á atriði. Til þess geturðu annaðhvort ýtt á TAB lykilinn á lyklaborðinu eða notað Demote hnappinn á verkfærastikunni fyrir ofan vinnusvæðið.

Til að fá síðan ritbendilinn aftur í fyrstu stöðu skaltu ýta á Promote (eða Shift+TAB á lyklaborðinu).

5.Settu lit á fyrirsagnir á glæru þrjú: Við skrifstofustörf, Við tæknileg störf og á heimilum. Til þess að gera það þarftu að ljóma textann og smella á Font color hnappinn upp í verkfærastikunni. Þar getur þú síðan valið lit.

6.Settu inn myndir á glærurnar eins og sýnt er og settu myndir í staðinn fyrir Bullets á seinustu glæruna og notaðu til þess Gallery valmöguleikann sem þú getur nálgast á tvenna vegu, annaðhvort upp í valstikunni undir Tools > Gallery eða fyrir neðan vinnusvæðið á verkfærustikunni þar.

7.Settu fót á allar glærurnar og bakgrunn, nema þá fyrstu.

8.Settu síðan hreyfingu á allan texta.

9.Skoðaðu glærusýninguna síðan og gerðu breytingar ef þarf.

10.Vistaðu og lokaðu.

Þessi síða á .PDF formi fyrir Windows

Tenglar