Verkefni 5: Neyðarnúmer

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita


Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:

  • Opnar skjal
  • Slærð inn töflu með TAB
  • Notar útlitsafritun
  • Setur neðanmálsgreinar með táknum
  • Býrð til töflu með punktalínu


Neyðarnúmer

1. Opnaðu skjalið sem þú gerðir í verkefni 4 og vistaðu það með nafninu 05verk (File > Save As...) inn á þitt svæði.

2. Sláðu inn eftirfarandi töflu fyrir neðan töfluna úr verkefni 4.

ATH! Passaðu að það sé allavega ein auð lína undir nýju töflunni, ef ekki búðu þá til tóma línu með Enter.
Byrjun á töflu

3. Þessi tafla á að líta eins út og efri taflan og því er best að nota útlitsafritun. Veldu fyrstu línuna í efri töflunni. Smelltu á Format PaintbrushMynd:Takn26x26_paintbrush_OOo3.png‎ ‎. Bendillinn breytist í málningarfötu Mynd:Paintbrush_cursor.png. Notaðu fötuna til að velja fyrstu línuna í nýju töflunni. Línan ætti að breytast og fá sama útlit og valið var.

4. Merktu núna einhverja af neðri línunum í efri töflunni. Notaðu Format Paintbrush og strjúktu yfir neðri línurnar í nýju töflunni. Passaðu að velja ekki auðu línuna. Þetta gerum við til að eiga auða línu sem er ekki í ramma til að halda áfram með skjalið.

5. Settu inn neðanmálsgrein aftan við „Díselolía“ í fyrstu línunni og hafðu tvo plúsa (++) sem tilvísunartákn.

6. Sláðu inn töfluna yfir neyðarnúmerin. Breyttu fyrirsögninni að eigin vali.

Taflan yfir neyðarnúmerin

7. Veldu bara töfluna og settu hægra dálkahak við hægri brún (17 cm). Þú getur gert það eins og í verkefni 4 eða notað stikuna.

Við vinstri endann á stikunni er mynd af dálkahaki:

hnappur til að velja dálkahak

Þarna getur þú valið þér dálkahak. Ef þú smellir á myndina breytist hún og sýnir hvaða gerð af dálkahaki er valin.

HnappurSkýring
Mynd:Takn-tab-left.png‎Vinstri
Mynd:Takn-tab-right.pngHægri
Mynd:Takn-tab-center.pngMiðjað
Mynd:Takn-tab-center-dot.pngPunktjöfnun

Þegar þú hefur valið dálkahakið smellir þú á stikuna þar sem þú vilt að það komi. Það er smá vandamál við að setja dálkahak við 17 cm því þar er fyrir þríhyrningur og ef þú smellir á hann kemur ekkert dálkahak. Þú þarft að smella aðeins framar á stikuna, t.d. við 16,5 cm og draga svo dálkahakið að 17 cm.

Tab sett á stiku

Ef þú vilt losna við dálkahak dregur þú það niður af stikunni.

8. Nú viljum við fá punktalínu í töfluna. Veldu alla töfluna og farðu í Format > Paragraph > Tabs. Þú ættir að sjá dálkahakið sem þú settir, það er kannski ekki alveg nákvæmlega við 17 cm. Ef þú sérð ekkert dálkahak þar, þá ertu annaðhvort ekki búinn að setja það á sinn stað eða þú hefur valið eitthvað meira en töfluna sjálfa.

Smelltu á 17 cm og veldu punktalínuna undir Fill Character.

Skjalið full unnið

---

Þetta skjal á .PDF formi

Tenglar