Verkefni 5: Heildareinkunnir

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita


Verkefni 5


Í þessari æfingu lærir þú að:

  • Bæta við dálkum
  • Nota If fallið

1.Sæktu skjalið 05Einkunnir og vistaðu á þínu svæði.

2.Gefðu síðunni heitið Heildareinkunnir.

3.Bættu við einum dálki fyrir framan A dálk með því að hægri smella á dálkaheitið og velja Insert Column.

bæta við dálk

4.Settu inn fyrirsagnir á viðeigandi dálkum eins og sýnt er á fyrirmyndinni.

Fyrirsagnir

5.Feitletraðu fyrirsagnirnar og settu strik fyrir neðan þær með því að setja reiti C2 til J2 í blokk, hægrismella einhverstaðar á þá, velja Format Cells -> Borders og smelltu síðan á línuna fyrir neðan kassann á myndinni. Og hafðu hana 1 pt svera.

6.Settu dálka A,B,C,D,E,F,G,H og Jí blokk og breyttu breiddinni í 3,5 cm.

7.Breyttu breiddinni á dálk B í 4,0 cm.

8.Tvísmelltu núna á skilin á milli allra dálkaheitanna sem eru í notkun til að láta dálkana passa sjálfkrafa utan um innihaldið.

9.Skrifaðu töluna 1 í reit A3 og ýttu á Enter. veldu svo aftur reitinn A3 og tvísmelltu síðan í litla kassann í horninu (Fyllihnúðinn) og Calc telur sjálfkrafa niður í reit A16.

10.Tvísmelltu síðan á dálkaskilin á milli A og Btil að minnka dálkinn sj]álfkrafa.

11.Settu inn formúlu sem reiknar út verkefnaeinkunn nemanda í reit F3:

=(C3*0,1+D3*0,15+E3*0,25)*0,2 

Afritaðu svo þessa formúlu niður með fyllihnúðnum.

12.Settu inn formúlu í reit H3:

=G3/10 

afritaðu hana niður í reit H16 með því að tvísmella á fyllihnúðinn.

13.Þar sem verkefnin samtals og prófið gilda hvoru tveggja 50% þarf hér einfaldlega að leggja saman verkefnaeinkunn og prófeinkunn og deila síðan í með 2. Settu inn formúlu í I3:

=(F3+H3)/2 

afritaðu svo niður í reit I16. (hér hefði að sjálfsögðu einnig verið hægt að nota Average() fallið)

14.Notaðu Fallálfinn til að setja inn formúlu í reit J3 sem segir hvort nemandi sé fallinn í faginu:

=IF(H3<5;"Fall";"***") 

Afritaðu hana niður í reit J16.

15.Notaðu Fallálfinn til að setja inn formúlu í reit J18 sem telur hversu margir hafa fallið.

=COUNTIF(J3:J16;”Fall”)

16. Raðaðu nöfnunum í stafrófsröð með

Passaðu að velja allt sem á að raða og bara það sem á að raða áður en smellt er á hnappinn. Passaðu einnig að byrja valið í þeim dálk sem á að raða eftir. Þ.e. að svarti ferningurinn sé á fyrsta nafninu Sjá mynd:

17 Skoðaðu skjalið í Prentskoðun

Verkefnið fullgert

Verkefnið fullgert


Þetta verkefni á pdf formi fyrir linux

Þetta verkefni á pdf formi fyrir Windows

Tenglar