Verkefni 5: Fjölmiðlar

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita
Þetta verkefni er enn í vinnslu

Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:

  • Býrð til nýtt skjal
  • Býrð til kynningarglæru
  • Setur veftengla inn á glæru
  • Setur myndir inn á glæru
  • Setur bakgrunn á glæru
  • Setur haus og fót á glæru og blaðsíðutölur

Fjölmiðlar

1.Opnaðu nýja glærusýningu og vistaðu sem 05fjolmidlar.

2.Búðu til fyrstu glæruna sem á að vera kynningarglæran – Title Slide. Skrifaðu textann eins og hann er sýndur á sýnidæminu.

3.Næsta glæra á að vera Title, 2 text boxes. Þar skaltu rita inn textann eins og hann kemur fyrir.

4.Inn á þessa glæru verða að vera tenglar inn á vefsíðurnar verið er að vísa í. Til þess að búa til þessa tengla þarf að blokka heitin á fjölmiðlunum og smella á hyperlink hnappinn sem fyrir ofan vinnusvæðið.

5.Þá færðu upp hyperlink glugga þar sem þú getur ritað vefslóðirnar sem vísa á viðeigandi heimasíður.

6.Til að búa til nýja glæru skaltu hægri smella á glæru í Glæruglugganum og smella áNew Slide. Næstu þrjár glærur verða allar með sama forminu sem er Title, Clipart, Text. Búðu til þrjár svoleiðis glærur í einu. Ritaðu textann eins og sést á fyrirmyndinni og finndu myndirnar í gegnum google myndaleitina. Notaðu leitarorðin Mbl.is, Visir.is og vikudagur.net.

7.Næst skaltu velja bakgrunn á allar glærurnar. Til að velja bakgrunn smellirðu á Slide design hnappinn í verkfærastikunni.

8.Þá færðu upp kassa þar sem þú getur valið úr bakgrunnum sem þegar hafa verið notaðir, þar smellirðu á Load til að fá upp glugga með þeim bakgrunnum sem eru til.

9.Fyrir fyrstu glæruna skaltu velja Fresco en hinar Light Blue Shapes.

10.Næstu skaltu setja fót á allar glærurnar með því að smella á Insert > Page number og þá færðu upp glugga Header and Footer gluggann þar sem þú getur breytt öllu sem við kemur því.

11.Þar skaltu haka við Fixed í Include Date and time og í fótinn skaltu skrifa nafnið þitt. Einnig skaltu haka við Slide number.

12.Áður en þú vistar og lokar verkefninu skaltu smella á Glærusýningarhnappinn til að skoða glærusýninguna.

13.Vistaðu glærusýninguna og lokaðu.

Þessi síða á .PDF formi fyrir Windows

Tenglar