Verkefni 4: OpenOffice.org
Úr OpenOffice.is
| Þetta verkefni er enn í vinnslu |
Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:
- Býrð til glærusýningu með 5 glærum
- Býrð til forsíðu með tilbúnni mynd og leturgerð
- Býrð til töflu á glæru
- Setur inn teiknaða hluti á glæru
- Setur hreyfingar á glæru
- Setur fót og blaðsíðunúmer á glærur
OpenOffice.org
1.Búðu til nýja glærusýningu með 5 glærum. Vistaðu undir nafninu 04OpenOffice.
2.Skrifaðu inn textann eins og sýnt er á myndinni.
3.Á forsíðuna skaltu nota Blank Page útlitið í Verkglugganum og setja inn bakgrunnsmynd eins og sýnd er í fyrirmynd. Þessa mynd geturðu nálgast í gegnum [1]myndaleitina með leitarorðinu OpenOffice.org. Vistaðu hana á þínu svæði. (ATH. Myndin sýnir eingöngu textann OpenOffice.org og útlínur tveggja fugla).
4.Á forsíðuna skaltu hægri smella og velja > Set Background Picture for Slide. Finndu svo myndina og veldu.
Þú getur valið hvort myndin birtist á öllum glærunum eða bara þeirri sem þú ert á. Með því að velja Yes við spurningunni: Background settings for all pages? Þá mun myndin koma á öllum glærunum, en með því að velja No, þá kemur myndin eingöngu fram á viðkomandi glæru. Í þessu verkefni skaltu velja No.
5.Þá færðu upp glugga þar sem þú getur fundið þína mynd og hlaðið henni niður.
6.Á forsíðunni skaltu líka nota Fontwork gallery til að setja inn forritaheitin.
7.Hinar myndirnar á glærum 3 til 5 geturðu líka fundið á Google myndaleitinni með því að skrifa inn eftirfarandi leitarorð: OpenOffice Impress, OpenOffice Writer og OpenOffice Calc. Mundu að vista myndirnar inn á þínu svæði.
8.Á glæru 2 þarftu að setja upp töflu sem telur upp helstu forrit OpenOffice og samsvarandi forrit í Microsoft Office Til að gera þetta þarftu að smella á litlu örina við hliðina á Töfluhnappinn í verkfærastikunni fyrir ofan. Þá birtist listi með kössum þar sem þú getur valið hversu marga dálka og raðir þú vilt hafa í töflunni þinni.
9.Í töflunni sem þú ætlar að búa til eru fjórar línur og tveir dálkar svo að þú færir músabendilinn þannig að hann þekur það svæði.
10.Þá getur þú skrifað inn texta sem á að vera í töflunni og til að breyta litnum á töflunni notar þú fljótandi verkfærastiku sem birtist þegar taflan birtist. Til að setja lit á ákveðin reit, dálk eða línu, þarftu að hafa þann hluta ljómaðan til að liturinn birtist.
11.Á 2 glæru eru líka teiknaðir hlutir neðst á henni. Til þess að fá þá fram notarðu verkfærastiku sem er fyrir neðan vinnugluggann.
12.Þú getur smellt á litlu örvarnar til að fá fram ýmsa möguleika. Þegar þú setur þá á glærurnar þá þarftu að smella með músinni á það svæði sem þú vilt að hluturinn komi og síðan ráðið stærðinni.
13.Settu hreyfingu á allan texta.(Sjá verkefni 2)
14.Settu fót á allar glærur nema fyrstu.(Sjá verkefni 1)
15.Skoðaðu glærusýninguna áður en þú vistar og lokar. Breyttu ef þarf að breyta.
16.Vistaðu og lokað.


