Verkefni 4: Breytingar á bensínverði
Úr OpenOffice.is
Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:
- Býrð til nýtt skjal
- Slærð inn töflu með TAB
- Setur dálkahök
- Setur neðanmálsgreinar með táknum
Breytingar á bensínverði
1. Búðu til nýtt skjal í Writer með því að fara í File > New > Text Document og vistaðu það sem 04verk inn á þitt svæði.
2. Breyttu Default stílnum í Times New Roman, 10pt.
3. Sláðu inn fyrirsögnina '„Breytingar á bensínverði 19. maí 2009“'. Ýttu þrisvar á Enter og sláðu svo inn fyrstu línu töflunnar. Ýttu á
hnappinn á milli liða.
4. Veldu línuna sem þú slóst inn og farðu í Format > Paragraph og þar i Tab flipann. Þarna getum við sett inn dálkahök að eigin vali. Settu vinstrijöfnuð dálkahök við 6 og 8 cm og hægrijöfnuð við 12 og 15 cm.
Byrjaðu á að slá inn 6 í reitinn Position og veldu svo Left ef það er ekki þegar valið. Smelltu svo á New hnappinn. Sjá mynd hér fyrir neðan.
Gerðu svo eins fyrir hin dálkahökin. Ýttu á OK þegar öll dálkahökin eru komin á sinn stað. Taktu eftir að núna koma svört merki á stikuna. Þetta eru dálkahökin sem þú settir inn. Munurinn á Left og Right er hvernig textinn jafnast við merkið.
5. Settu bendilinn aftast í línuna og ýttu á Enter. Þú verður að gera þetta til að næsta lína fái stillingarnar sem þú varst að gera. Sláðu nú inn afganginn af töflunni og ýttu á TAB á milli liða. Nú á textinn alltaf að lenda á réttum stað.
6. Settu ramma á töfluna með Format > Paragraph > Borders. Settu ramma á fyrstu línuna. Settu svo ramma á neðri hluta töflunnar með því að smella í User-defined reitinn (Sjá mynd fyrir neðan).
Þú getur fært rammann aðeins inn frá hægri með því að merkja alla töfluna og draga þríhyrninginn hægra megin á stikunni aðeins inn.
7. Settu svartan bakgrunn á fyrstu línuna, annað hvort með Format > Paragraph eða með Format Paintbrush hnappnum.
Liturinn á stöfunum á að breytast sjálfkrafa í hvítt. Ef það gerist ekki, þá þarf að gera þá hvíta með Font Color hnappnum.
8. Settu inn neðanmálsgrein með + sem tilvísanatákn (sjá verkefni 3, lið 12).
9. Breyttu fyrirsögninni að eigin vali.
10. Settu haus í skjalið með nafninu þínu vinstra megin og nafni skólans hægra megin.










