Verkefni 3: Te
Úr OpenOffice.is
| Þetta verkefni er enn í vinnslu |
Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:
- Búa til glærusýningu
- Setja myndir inn á glærur
- Setja fót og blaðsíðunúmer á glærur
- Setja ýmsar hreyfingar á texta á glæru
- Setja fontwork textakassa á glæru
Te
1.Opnaðu nýja glærusýningu og vistaðu sem 03Te á þínu svæði.
2.Búðu til 6 glærur í einu með því að smella á Slide hnappinn í verkfærastikunni.
3.Settu síðan inn texta og útlit eins og sýnt er á fyrirmyndinni. Mundu að breyta útlitinu í verkglugganum title slide - title, 2 text blocks o.s.frv.
4.Næst skaltu velja glæru númer þrjú og setja áherslupunkta Bullets á texta eins og sýnt er á fyrirmyndinni. Til að gera það skaltu ljóma textann og smella á Format > Bullets and numbering í valstikunni. Þá færðu upp glugga þar sem þú getur breytt ýmislegu í sambandi við áherslupunkta og tölur.5.Fyrir glæru 3 skaltu velja litaða áherslupunkta að eigin vali.
6.Veldu síðan glæru 6 í Glæruglugganum og settu áherslupunkta að eigin vali þar samkvæmt fyrirmynd.
7.Til að setja inn myndir skaltu nota Google myndaleitina og nota leitarorð eins og tea, teapot, water og teacup. Mundu að þú getur stækkað og minnkað myndirnar þegar þú ert búinn að setja þær inn á glærurnar með því að draga til litlu grænu kassana sem myndast utan um myndirnar. Gættu þín þó að halda SHIFT hnappnum niðri á meðan þú ert að stækka/minnka myndina því þá helst myndin í réttum hlutföllum.
8.Næst skaltu setja inn fót á allar glærurnar nema fyrstu og mundu þá að haka við Do not show on first slide í header og footer glugganum.
9.Næst skaltu setja inn textakassa á seinustu glæruna með því að nota Fontwork gallery hnappinn sem er yfirleitt staðsettur fyrir neðan vinnusvæðið á stiku þar.
10.Þegur þú smellir á hann þá kemur upp gluggi þar sem þú getur valið hvernig leturgerð þú vilt hafa.
11.Þegar þú ert búin að velja þá leturgerð sem þú vilt hafa þá smellir þú á Ok og þá birtist sjálfkrafa textakassi sem stendur Fontwork inn í. Inn í hann skrifar Tekanna og færir hann síðan til eins og sést á fyrirmyndinni.
12.Þegar þú ert búinn að öllu þessu skaltu setja inn hreyfingar á allan texta í glærusýningunni. Í þetta sinn skaltu prófa þig áfram með því að bæta við hreyfingum sem leggja áherslu á hvernig texti hverfur og hreyfingu á heilum texta bútum á glæru.
13.Þegar þú ert búinn að setja hreyfingu skaltu skoða glærusýninguna með því að smella á Slideshow hnappinn og gera breytingar ef þarf.
14.Vistaðu og lokaðu.





