Verkefni 3: Hitastig

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita


Í þessari æfingu lærir þú að:

  • Breikka dálka
  • Setja formúlu inn í reit
  • Nota Fallálfinn
  • Hækka línur
  • Velja marga dálka í einu

1.Sæktu skjalið 03Hitastig.ods og vistaðu það á þínu svæði.

2.Gefðu síðu eitt heitið Hitastig.

3.Næst áttu að breikka Dálka A, B, C og D. Settu dálkana A, B, C og D í blokk með því að smella á bókstafinn A, halda inni Shift lyklinum og smella síðan á bókstafinn D. Síðan skaltu hægri smella á A og velja Column Width úr fellivalslistanum sem birtist. Þar skaltu setja inn 3 cm.

Velja marga dálka

4.Bættu inn línu milli línu 1 og 2. Til að setja inn línu skaltu hægrismella á línu 2 og velja Insert Rows í fellivalmyndinni

5.Skrifaðu eftirfarandi fyrirsagnir í reiti A2, B2, C2 og D2 eins og sýnt er og hafðu þær í 10 punkta letri og feitletraðar Feitletrun

Fyrirsagnir

6.Fjölmiðjaðu fyrirsögnina Hitastig í nokkrum borgum í A1 til D1. Feitletraðu og stækkaðu í 12 punkta.

7.Hækkaðu línu 1 í 1,5 cm og miðjaðu fyrirsögnina. Til að gera þetta skaltu hægri smella á línunúmerið á línu 1. (töluna 1 við hliðina á reitnum A1) og velja Row height. Þá færðu upp glugga þar sem þú getur ráðið hæðinni á línunni. Breyttu henni í 1,5 cm.

8.Settu formúluna =B3-C3 Formúlainn í reit D3. Hún reiknar út mismuninn á hitastigi á miðnætti og hádegi á hverjum stað. Afritaðu síðan formúluna niður í reit D6 með því að tvísmella á fyllihnúðinn. fyllihnúður

9.Notaðu Fallálfinn til að finna minnsta hita á hádegi á hverjum stað og afritaðu síðan formúluna yfir í reit C7.

Til að kalla fram Fallálfinn geturðu annaðhvort smellt á Fallaálfur eða á Ctrl + F2 á lyklaborðinu. Þá færðu upp glugga þar sem þú getur valið föllin sem þú vilt nota.

Fallaálfurinn

Undir Functions flipanum skaltu finna fall sem heitir MIN og smella á Next. Þá ferðu yfir á næsta stig sem er að velja þá reiti sem formúlan á að vinna með sem í þessu tilfelli eru reitir B3 til B6. Þú skalt skrifa B3:B6 inn í gluggann sem heitir number 1. FallSíðan skaltu smella á Ok.

10.Til að afrita þessa formúlu yfir í D7 skaltu smella á fyllihnúðinn og draga hann yfir í D-dálkinn. Fall


11.Notaðu Fallálfinn aftur til að finna mesta hita(MAX) á hádegi á hverjum stað í reit B8 og afritaðu síðan formúluna yfir í reit D8.

12.Þegar þú ert búin að þessa skaltu skoða skjalið í prentskoðun

13.Vistaðu skjalið og skilaðu því.


Þetta verkefni á .pdf formi fyrir Windows

Þetta verkefni á .pdf formi fyrir Linux

Tenglar