Verkefni 3: Asperger heilkenni
Úr OpenOffice.is
Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:
- Býrð til númeraðan lista
- Rammar inn texta og setur bakgrunnslit á hann
- Setur línu undir efnisgrein
- Setur neðanmálsgreinar
Asperger heilkenni
1. Opnaðu skjalið 03verk og vistaðu það inn á þitt svæði.
2. Breyttu spássíum þannig að hægri og vinstri séu 1,5 cm og uppi og niðri 2 cm.
3. Breyttu Default stílnum þannig að stafagerðin sé Times New Roman, 12pt ( sjá verkefni 2, lið 5-6).
4. Breyttu Default stílnum þannig að það komi alltaf 0,5 cm bil milli efnisgreina. Það gerir þú í flipanum Indents and Spacing og stillir þar á 0,5 cm í Below Paragraph.
5. Búðu til númeraðan lista eins og á fyrirmyndinni. Veldu textann sem númerin eiga að koma á og smelltu á númerahnappinn
.
6. Lagaðu bilið á númerunum þannig að talan sé við 1 cm og textinn við 2 cm. Veldu textann sem þú ert að vinna með og dragðu síðan til þríhyrningana á stikunni. Þú verður að draga neðri þríhyrninginn fyrst að 2 cm eins og sýnt er á myndinni hér fyrir neðan. Þegar þú dregur hann þá eltir sá efri líka. Dragðu síðan efri þríhyrninginn að 1 cm.
7. Veldu næst tvær efnisgreinar fyrir neðan listann (textinn sem er í rammanum skv. fyrirmynd) og dragðu þær inn um 3 cm frá hægri og vinstri. Það getur þú gert með því að draga til þríhyrningana á stikunni eða með því að fara í Format >Paragraph og í Indents and Spacing flipann og stilla bæði Before Text og After Text á 3 cm.
8. Hafðu inndregna textann áfram valinn, minnkaðu stafastærðina í 10pt og fulljafnaðu textann
. Skáletraðu seinni efnisgreinina.
9. Hafðu allan inndregna textann áfram valinn og farðu í Format > Paragraph, þar í Borders flipann. Settu þar ramma utan um textann ( sjá mynd fyrir neðan). Ramminn á að vera 2,5pt. Settu gráan skugga 0,25 cm frá og ramminn á að vera 0,3 cm frá textanum.
10. Hafðu allan inndregna textann áfram valinn, farðu í Format > Paragraph og þar í Background flipann. Settu ljósan bakgrunnslit að eigin vali á textann.
11. Breyttu fyrirsögninni í Arial Black 20pt og settu 1pt línu undir hana með Format > Paragraph > Borders.
12. Settu neðanmálsgrein með tilvísun á eftir „Asperger“ í fyrstu línu (ekki í fyrirsögninni). Passaðu að bendillinn sé fyrir aftan orðið „Asperger“ því að tilvísunin kemur þar sem bendillinn er. Farðu í Insert > Footnote. Ekki þarf að breyta neinu í glugganum sem kemur upp þannig að þar má ýta beint á OK. Þá kemur reitur neðst á síðuna með tölunni 1 fremst og þar skrifar þú texta neðanmálsgreinarinnar eins og á fyrirmyndinni (Hans Asperger var austurrískur barnalæknir fæddur 1906).13. Notaðu sömu aðferð til að setja neðanmálsgrein aftan við orðið „klíniskt“ aftarlega í fyrstu efnisgreininni (Orðið klínik er dregið af gríska orðinu kline sem þýðir rúm og vísar þannig til rúmliggjandi eða líkamlega veigra sjúklinga).






