Verkefni 2: Tölvuleikir

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita
Þetta verkefni er enn í vinnslu

Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:

  • Býrð til glærusýningu með sjö glærum
  • Breyta stafagerð og stærð á fyrirsögnum
  • Setur fót með blaðsíðutali
  • Setur hreyfingu á texta á glærum
  • Notar inndrátt á texta á glærum
  • Notar áherslupunkta á texta á glærum
  • Setur bakgrunn á glærur

Tölvuleikir

1. Búðu til glærusýningu með 7 glærum og vistaðu hana undir nafninu 02toluvleikir.

2. Þú getur búið til nýjar glærur í Glærugluggann annaðhvort með því að hægri smella einhvers staðar í gluggann og smella á New Slide eða þú getur smellt á Slide hnappinn sem er á verkfærastikunni fyrir ofan Vinnusvæðið. 3. Fyrsta glæran á að vera titilsíða Title slide. Skrifaðu textann eins og hann kemur fyrir á myndinni.

4. Önnur glæra á að vera glæra með titli og texta. title text

5. Þriðja glæra á að vera titilsíða með tveimur textablokkum Title, 2 text block. Skrifaðu textann eins og hann kemur fyrir á myndinni.

Mundu að hafa inndrátt á undirflokkunum.


ATHUGAÐU!!
Þú getur fengið inndrátt á texta með því að ýta á Tab á lyklaborðinu eða með því að ýta á Demote hnappinn sem er í verkfærastikunni.

6. Skrifaðu síðan inn textann á næstu fjórar glærur sem allar eru með sama útliti og glæra tvö Title, text.

7. Smelltu á glæru tvö í glæruglugganum og smelltu síðan á Tools > Gallery á valstikunni. Þá færðu upp glugga fyrir ofan glæruna þar sem þú getur valið úr ýmsum myndum til að nota. Veldu hnappinn sem er sýndur á myndinni og settu hann inn á glæruna með því að velja hnappinn, nota hægri hnapp músarinnar og velja Insert > Copy. Smelltu svo aftur á Tools > Gallery til að ljúka aðgerðinni.

Til að fá marga svona hnappa þarftu að afrita hnappinn nokkru sinnum.

8. Næst skaltu breyta leturgerðinni í fyrirsögnunum á glærum 2-7 í Arial Black með útlínum og skugga. Veldu fyrirsögn og hægri smelltu á hana (eða farðu í Format skipunina á valstikunni), veldu Characters í listanum sem kemur upp, kemur gluggi með þremur flipum. Undir Font flipanum skaltu finna Arial Black og undir Font Effects flipanum skaltu haka við Outline og Shadow og smella síðan á Ok.

9. Næst skaltu setja fót á allar glærur.(Sjá verkefni 1)

10. Næst skaltu setja hreyfingu á texta. Til að setja inn hreyfingar á texta skaltu smella á Custom animation hnappinn sem er neðarlega hægra megin í Verkglugganum.

11. Næst skaltu ljóma þann texta sem þú vilt setja hreyfingu á og smella á Add. Þá færðu upp lista af hreyfingum sem þú getur sett á textann að eigin vali.

12. Veldu einhverja hreyfingu, stilltu á hentugan hraða (speed) og smelltu á Ok. Gerðu þetta aftur fyrir hverja setningu.

10. Síðan skaltu setja bakgrunn á allar glærurnar.(Sjá verkefni 1)

11. Skoðaðu síðan glærusýninguna og gerðu breytingar ef þarf.

Ef textinn fer niður fyrir glæru, þá verður að laga það, t.d. með því að minnka texta

12. Vistaðu og lokaðu.

Þessi síða á .PDF formi fyrir Windows

Tenglar