Verkefni 2: Nemendur
Úr OpenOffice.is
Efnisyfirlit |
Í þessari æfingu lærir þú að:
- Nota dálkabil til að aðlaga að texta
- Breyta aukastöfum
- Nota innbyggð föll
- Bæta inn línum
Nemendur
1.Opnaðu OpenOffice Calc (ef það er ekki opið hjá þér). Gefðu skjalinu heitið 02Upplysingar og síðunni heitið Upplýsingar.
2.Sláðu inn eftirfarandi titil í reitinn A1 og ýttu á Enter: Upplýsingar um nemendur
3.Veldu reitina A1:G1, sameinaðu og miðjaðu Nú er fyrirsögnin komin á miðjuna á svæðinu
4.Skrifaðu Hópur: og númer hópsins í A2 og nafnið þitt í F2
5.Stækkaðu allan texta í línum 1 og 2, í 12 pt og feitletraðu
Þá ætti þetta að líta út svona:
6.Skrifaðu fyrirsagnir dálka og nöfn eins og á myndinni.
7.Tvísmelltu á skilin milli A og B dálka til að breikka A dálkinn þannig að hann aðlagi sig að textanum.
8.Skrifaðu tölurnar samkvæmt fyrirmyndinni.
Þú tekur eflaust eftir því að texti liggur vinstra megin í reitunum en tölur liggja hægra megin. Þetta er sjálfgefin stilling í Calc.
Fótlengdin (frá hæl að tá) er skráð með einum aukastaf. Ef þú skráir 0 fyrir aftan kommu, t. d. 21,0 þá birtist aðeins 21 í reitnum. Til að tölurnar líti betur út þá þarft þú að stilla fjölda aukastafa.
9.Ljómaðu allar tölurnar og fjölgaðu aukastöfunum með tökkunum sem bent er á hér fyrir neðan. Við skulum hafa einn aukastaf á öllum tölum.
10.Vistaðu verkefnið með því að smella á Save takkann, flýtileið til að vista verkefni er Ctrl-S.
Innbyggð föll
Næst skulum við vinna svolítið með innbyggð föll í Töflureikninum. Algengasta fallið er SUM en það er notað til að leggja saman margar tölur. Það er óþarfi að nota það ef við ætlum bara að leggja saman tvær tölur og mundu að SUM er eingöngu notað við samlagningu, ekki nota SUM ef þú ert að margfalda, deila eða draga frá. Við höldum áfram með verkefnið. Við ætlum að nota innbyggð föll til að reikna summu talnanna, meðalgildi þeirra, finna hæsta gildi og og lægsta gildi.
11.Skrifaðu Samtals í A13, Meðalgildi í A15, Hæsta gildi í A17 og Lægsta gildi í A19.
12.Veldu reitinn B13 og smelltu á SUM takkann.
Nú sérðu að Calc býr til formúlu í reitnum.
Formúlan =SUM(B5:B12) leggur saman allar
tölur frá B5 til B12.
Þessa formúlu er einnig hægt að skrifa í formúlu-
reitinn.
13.Smelltu á B13 og ýttu á Delete á lyklaborðinu.
14.Skrifaðu =SUM( taktu músina og ljómaðu tölurnar í reitunum B5 til B12, lokaðu sviganum ) og ýttu á Enter. Nú er sama formúlan komin aftur og þú hefur lært tvær aðferðir til að setja inn reikniformúlur í töflureikninum Calc. Nú er komið að því setja inn næsta fall, til að reikna meðalgildi (meðaltal) talnanna.
13.Smelltu á reitinn B15 og smelltu síðan á fallálfinn
sem er vinstra megin við SUM takkanum sem þú notaðir áðan.
Nú opnast listi yfir þau föll sem til eru í Calc.
14.Flettu niður listann þar til þú finnur fallið AVERAGE, smelltu á það og síðan á Next.
15.Ljómaðu svæðið B5 til B12 og ýttu á ENTER. Nú er komin formúla með fallinu AVERAGE sem reiknar meðalgildi (125,17) talnanna. Næst skaltu láta tölvuna finna hæstu töluna í B-dálki.
16.Smelltu á B17 og smelltu síðan á fallálfinn
eins og áðan.
20.Finndu fallið MAX á listanum, smelltu á Next, veldu svæðið B5 til B12 og smelltu á OK, eða ýttu á ENTER.
21.Loks velur þú reitinn B19 og setur þar inn fallið MIN á sama hátt og föllin hér fyrir ofan.
Nú ertu búin að nota föll til að reikna summu og meðalgildi og finna hæstu og lægstu tölu í B-dálki. Næst skaltu láta tölvuna gera það sama fyrir tölurnar í hinum dálkunum, en bíddu aðeins, þú þarft ekki að setja allar formúlurnar inn þar líka. Nú notum við afritunartæknina til að setja inn þessar formúlur fyrir hina dálkana.
22.Ljómaðu svæðið frá B13 til B19 og dragðu síðan fyllihnúðinn yfir í D-dálk.
Þá er aðeins eftir að setja sama fjölda aukastafa á allar tölur
23.Veldu svæðið B13 til D19 og settu einn aukastaf á tölurnar, sjá lið 10 hér að framan.
24.Líttu yfir skjalið og athugaðu vel hvort allar formúlur og útlit eru ekki í góðu lagi.
25.Vistaðu skjalið og lokaðu því.
Þá á þetta að vera komið og taflan á að líta út eins og hér að neðan.
Það er nauðsynlegt að treysta ekki niðurstöðum útreikninganna í blindni. Líttu alltaf á niðurstöðurnar og athugaðu vel hvort þær geti staðist. Ef meðalgildið fyrir hæð er t.d. 34 eða 197 cm þá er ástæða til að athuga hvort þú hafir sett inn rétta formúlu.
Gögnum bætt inn
Hvað gerum við ef það kemur í ljós að það þarf að bæta inn nýju nafni á listann? Það fyrsta sem þarf að gera er að setja inn nýja línu í töfluna fyrir neðan neðsta nafnið. Síðan skrifar þú nafnið, ásamt viðeigandi upplýsingum, í þessa nýju línu. En hvaða áhrif hefur það á niðurstöðurnar? Skoðum málið!
26.Hægrismelltu á línunúmerið 12.
27.Veldu Insert Rows af listanum.
28.Settu nafnið Guðlaug Jósteinsdóttir í fyrsta dálkinn og síðan viðeigandi upplýsingarnar: Hæð 136 cm , þyngd 39,4 kg og fótlengd 19,8 cm
29.Breikkaðu dálkinn með nöfnumum (sjá lið 7).
30.Athugað hvort tilvísanirnar nái yfir línur 6 til 13 í öllum formúlum. Ef svo er ekki þá þarf að laga formúlurnar.
31.Vistaðu verkefnið og lokaðu því.












