Verkefni 2: Furðuleg mótorhjól í sögunni
Úr OpenOffice.is
Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:
- Opnar skjal
- Notar Styles and Formatting til að breyta texta
- Breytir stílum
- Setur inn mynd
Furðuleg mótorhjól í sögunni
1. Opnaðu skjalið 02verk og vistaðu það inn á þitt svæði.
2. Stilltu allar spássíurnar á 2 cm og blaðsíðustærðina á A4 (sjá verkefni 1, lið 2).
3. Opnaðu Styles and Formatting gluggann með
hnappnum.
5. Nú ætlum við að breyta stílnum Default þannig að textinn fái rétt útlit.
Hægri smelltu á Default í listanum og veldu Modify:
6. Veldu flipann Font í glugganum sem kemur upp og breyttu stafagerðinni í Times New Roman, 13pt.
7. Veldu flipann Alignment og stilltu á fulljöfnun (Justified). Smelltu síðan á OK hnappinn.
8. Nú ætti allt skjalið að hafa breyst nema síðasta efnisgreinin. Ástæðan er sú að síðasta efnisgreinin er ekki með stílinn Default.
Settu bendilinn í síðustu efnisgreinina og þá sérðu í stílalistanum að hún er af gerðinni Heading 8. Breyttu henni í Default með því að tvísmella á Default í listanum.
9. Láttu fyrirsagnirnar fá stílinn Heading 1 með því að setja bendilinn í þær og tvísmella á Heading 1 í listanum.
10. Breyttu stafagerð Heading 1 í Papyrus, 18pt. (ef Papyrus er ekki á þinni tölvu, finndu þá eitthvað annað, t.d. Comic Sans). Ef stærðin á stöfunum er í prósentum þarf að skrifa 18pt í reitinn. Þá breytist listinn í venjulegar punktatölur.
11. Breyttu aðalfyrirsögninni að eigin vali. Þar sem um er að ræða staka efnisgrein er óþarfi að setja ákveðinn stíl á hana þannig að hún má vera Default.
12. Settu eftirfarandi haus í skjalið (sjá verkefni 1, lið 8):
13. Settu línu undir hausinn til að aðgreina hann frá megintextanum. Hafðu bendilinn í hausnum og farðu í Format > Paragraph. Veldu Borders flipann og settu línu undir efnisgreinina og hafðu hana 1pt svera.14. Settu blaðsíðuskil á eftir kaflanum „Fjöldaframleiðsla“ með því að setja bendilinn aftast í þann kafla og gera CTRL+Enter.
15. Settu mynd að eigin vali aftast í skjalið. Hafðu bendilinn aftast í skjalinu og farðu í Insert > Picture > From File... og veldu myndina sem þú ætlar að nota (myndin daimler.jpg fylgir).






