Verkefni 1: Stutt saga OpenOffice.org

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:

  • Opnar skjal
  • Stillir spássíur og blaðsíðustærð
  • Breytir stafagerð og stærð
  • Fulljafnar og miðjar texta
  • Feitletrar, skáletrar og undirstrikar orð
  • Setur haus og fót með blaðsíðutali

Stutt saga OpenOffice.org

1. Opnaðu skjalið 01verk og vistaðu það með sama nafni inn á þitt svæði. Mundu að vista reglulega meðan verkefnið er unnið.

2. Opnaðu Format > Page > Page og stilltu spássíur (Margins) og blaðsíðustærð (Page Size) eins og myndin sýnir.


3. Veldu allt skjalið með CTRL+A. Breyttu stafagerðinni í Arial, 12pt og fulljafnaðu textann með Mynd:Hnappur-justify.jpg hnappnum

4. Bættu við tveimur línum fremst í skjalið með því að setja bendilinn fremst í fyrstu línu (CTRL+Home) og ýta tvisvar á Enter hnappinn.

5. Skrifaðu inn fyrirsögnina „Stutt saga OpenOffice.org“. Miðjaðu hana með Mynd:hnappur-midjun.jpg hnappnum. Breyttu stafagerðinni í Impact, 20pt.

6. Feitletraðu millifyrirsagnir með Mynd:Hnappur-feitletrun.jpg hnappnum eða með CTRL+B.

7. Feitletraðu Mynd:Hnappur-feitletrun.jpg, skáletraðu Mynd:Hnappur-skaletur.jpg og undirstrikaðu Mynd:Hnappur-undirstrik.jpg texta eins og á fyrirmyndinni.

8. Settu haus í skjalið með því að fara í Insert > Header > Default. Þá birtist reitur fyrir haus efst á síðunni. Sláðu inn nafnið þitt í þennan reit og ýttu svo tvisvar á dálklykilinn Mynd:lykill-tab.jpg og sláðu inn nafn skólans.

9. Breyttu stafagerð haussins í Arial.

10. Settu fót í skjalið með því að fara í Insert > Footer > Default. Nú kemur reitur neðst á síðuna. Skrifaðu „Blaðsíða“ og miðjaðu með miðjunarhnappnum Mynd:Hnappur-midjun.jpg. Hafðu bendilinn fyrir aftan orðið „Blaðsíða“ og farðu í Insert > Fields > Page Number. Þá kemur blaðsíðutal fyrir aftan orðið. Breyttu stafagerðinni í Arial.


ATHUGAÐU!!
Haus og fótur kemur á allar síður. Þú getur prófað það með því að bæta við síðu í skjalið. Settu bendilinn aftast í textann og ýttu á CTRL+ENTER. Þá verður til ný síða. Hún er með sama haus og fyrri síðan og er með blaðsíðutal neðst (Síða 2).

Endanlegt útlit - smelltu til að stækka
ATHUGAÐU!!
Táknin sem sjást á fyrirmyndinni eru falin tákn sem sjást almennt ekki. Hægt er að gera þau sýnileg með Mynd:Hnappur-nonprint.jpg hnappnum.

¶-Táknið þýðir að hér endar efnisgrein eða ýtt hefur verið á Enter-hnappinn. Örvarnar þýða að ýtt hefur verið á TAB hnappinn og punktar koma þar sem ýtt hefur verið á bilslána.

Þessi tákn koma ekki fram í prentun.

Þessi síða á .PDF formi

Tenglar