Verkefni 1: Fuglar
Úr OpenOffice.is
| Þetta verkefni er enn í vinnslu |
Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:
- Býrð til nýja glærusýninguna
- Setur myndir inn á glærur
- Setur haus, fót og blaðsíðunúmer á glærur
- Setur bakgrunn á glærur
Fuglar
1.Opnaðu Impress og veldu Empty presentation í glæruálfinum sem kemur upp sjálfkrafa þegar þú opnar Impress. Þú getur látið hann slökkva á sér með því að haka við Do not show this wizard again.
2.Búðu til nýja glærusýningu og vistaðu hana undir heitinu 01Fuglar á þínu svæði.
3.Búðu til þrjár glærur með því að smella á Slide
hnappinn þrisvar í verkfærastikunni fyrir ofan vinnusvæðið.
4.Fyrsta glæran á að vera kynningarglæran/forsíðan Title Slide. Formið finnur þú hægra megin í verkglugganum.
5.Næstu tvær glærur eiga að vera Title, Clipart, Text.
6.Inn á glæru 2 og 3 áttu að setja inn myndir og texta eins og sést á fyrirmyndinni.
Þú skalt finna myndirnar sem koma fyrir í verkefninu með því að fara í Google myndaleit á netinu og slá þar inn leitarorðin Álft og Haförn. Síðan velurðu þær myndir sem þér finnst henta besta og vistar þær inn á þínu svæði.
7.Þegar þú ert búin að rita inn textann sem á að koma á glærurnar (sjá fyrirmynd), þá skaltu tvísmella á litla myndarammann vinstra meginn á glærunni og finna þær myndir sem eiga að koma á glæruna. Endurtaktu skrefin fyrir hina glæruna.
8.Næst skaltu velja bakgrunn á fyrstu glæruna (titilsíðuna) með því að hægri smella á hana í vinnusvæðinu og smella á Slide > Slide Design.
Önnur leið til að fara í bakgrunnsstillingar er að smella á hnappinn sem er staðsettur í verkfærastikunni fyrir ofan vinnusvæðið. Vertu samt búinn að smella á fyrstu glæruna svo að hún sé valin.
9.Síðan smellir þú á Load og velur bakgrunn að eigin vali úr listanum sem birtist úr Presentation Backgrounds. Hinir glærurnar eiga að vera án bakgrunns.
10.Næst skaltu setja fót á glærurnar með því að fara í Insert > Page Number og haka við Date and time > Fixed og skrifa nafnið þitt í kassann við hliðina. Síðan skaltu haka við Footer og skrifa Verkmenntaskólinn á Akureyri í kassann við hliðina. Einnig skaltu haka við Slide number þannig að það komi númer á glærurnar og þá skaltu haka við Do not show on first slide þannig að kynningarglæran verði alveg hrein.
11.Smelltu á Slide show hnappinn í verkfærastikunni og skoðaðu hvernig glærusýningin rennur í gegn. Gerðu breytingar ef eitthvað er ekki rétt.
12.Vistaðu verkefnið og lokaðu.
Þessi síða á .PDF formi fyrir Windows
<gflash>400 300 http://a.blip.tv/api.swf#AYLmh0cC</gflash>




