Verkefni 1: Bílakostnaður

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:

  • Opnar og vistar skjal
  • Gefur síðu heiti
  • Feitletrar og hægrijafnar orð
  • Notar Summuhnappinn til að reikna út tölur
  • Setur haus og fót á síðu
  • Fjölmiðjar fyrirsögn
  • Notar fyllihnúðinn til að afrita
  • Setur ramma utan um reiti

Bílakostnaður

1. Opnaðu nýtt skjal í OpenOffice.org Calc og vistaðu það á þínu svæði sem 01Kostnadur

2. Byrjaðu á að gefa síðu eitt heitið Ýmis kostnaður með því að hægri smella á síðuheitið Sheet1 eins og sýnt er á myndinni, velja Rename Sheet og skrifa inn heitið.

Hægrismella hér


Smella hér


Breyta nafni


Búið



3. Skrifaðu inn textann og tölurnar eins og hann er sýndur hér á myndinni:

4. Feitletraðu Feitletrun , stækkaðu í 18 punkta og fjölmiðjaðu fyrirsögnina Bílakostnaður (sjá næsta lið).

5. Til að fjölmiðja skaltu setja reitina A1 til E2 í blokk og smella á sameiningarhnappinn Fjölmiðjunarhnappurinn. Við þetta sameinast merktu reitirnir og fyrirsögnin lendir í miðjum reitnum sem verður til við sameininguna

6. Feitletraðu Feitletrun fyrirsagnir janúar, febrúar, mars og apríl og hægrijafnaðu Hægrijöfnun

7. Næst skaltu forma tölurnar þannig að þær bæti við sig kr. til að gefa til kynna að þetta séu íslenskar krónur. Til að gera þetta skaltu setja reiti B4 til E8 í blokk (passaðu að hafa línu 8 líka með í blokkinni þó í henni séu engar tölur, við viljum að þær tölur sem eiga eftir að koma þar fái sama útlit.), hægrismelltu á blokkina og veldu Format Cells...

Format Cells...

Síðan skaltu velja Numbers flipann og breyta gjaldmiðlinum eins og sýnt er á myndinni.

Format numbers

8. Nú ætti taflan að líta svona út:

Tafla

9. Því næst skaltu setja formúlur í reiti B8, C8, D8 og E8 sem segja okkur hve há upphæð á mánuði fer í bílakostnað. Til þess að gera þetta er best að nota Summuhnappinn sem er á verkfærastikunni fyrir ofan vinnugluggann og lítur svona út sum.

Mundu að Summuhnappurinn er eingöngu notaður í samlagningu. Hann á aldrei að nota í öðrum útreikningi.

10. Þú smellir á reit B8 og smellir síðan á summuhnappinn. Hann tekur sjálfkrafa til reitina sem þú ætlar að nota í formúluna sem eru reitir B3 til B7 og lítur formúlan þá svona út.

Sum fallið

11. Því næst þarftu að reikna fyrir reiti C, D og E. Í staðinn fyrir að rita formúluna og smella á Summuhnappinn aftur getur þú einfaldlega látið afrita formúluna úr B8 yfir í reiti C8, D8 og E8 með því að smella á fyllihnúðinn sem er litli svarti kassinn neðst í hægra horninu á kassanum og draga hann yfir í reit E8.

fyllihnúðurinn Afrita fall

Þá ætti taflan að líta svona út.

tafla

12. Næst skaltu setja einfaldan borða fyrir ofan línu 8 og tvöfalda fyrir neðan. Til að gera þetta skaltu velja reiti A8 til E8, hægri smella á þá og velja Format Cells....> Borders og smella síðan á þær línur sem þú ætlar að hafa á reitunum eins og sýnt er á myndinni. Línan fyrir ofan á að vera 2,50 punkta og línan fyrir neðan á að vera tvöföld 2,60 punkta lína. Smelltu síðan á OK.

Borders

13. Núna ætti taflan að líta svona út:

Tafla

14. Næst skaltu setja haus og fót á verkefnið. Til þess að gera þetta skaltu smella á Format > Page... í valstikunni og velja Header. Þar skaltu smella á Edit og skrifa inn áfangaheiti, nafnið þitt og hópanúmer. Smelltu svo á OK.

Tafla

15. Nú skaltu smella á Footer flipann og Edit. Þar áttu .að setja inn sjálfvirkt heiti skjals, sjálfvirkt blaðsíðunúmer og sjálfvirkt heiti síðu. Til að fá þessi nöfn fram þarftu að nota hnappana sem eru staddir fyrir neðan textakassana og útskýring á þeim er hérna á myndinni.

Tafla
Tafla

16. 1.Næst skaltu miðja töfluna á síðuna með því að fara í Format > Page...> Page og haka við kassa sem heita Horizontal og Vertical og smella á Ok.

Align


Þá er þessu verkefni lokið. Farðu í File->Page Preview eða smelltu á hnapinn Mynd:hnappur-pagepreview.png og Það ætti að líta út eins og myndin hér til hliðar (smelltu á hana til að stækka)
Endanlegt útlit, smelltu til að stækka


Þessi síða á .PDF formi fyrir Windows

Þessi síða á .PDF formi fyrir Linux

Tenglar