Verkefni 17: Reiknidæmi með Math

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

ÞESSI SÍÐA ER Í VINNSLU

Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:

  • Setur upp formúlur með OpenOffice.org Math

Reiknidæmi með Math

1. Opnaðu skjalið 17verk og vistaðu það á svæðið þitt.

2. Til að nota OOo Math inni í Writer hefur þú bendilinn þar sem þú vilt að formúlan komi og ferð í Insert > Object > Formula. Þá opnast gluggi neðst á skjánum og eins opnast Formula Elements tækjastikan (athugaðu að ef þessi stika opnast ekki, þá þarf að velja hana með View > Formula Elements). Gerðu þetta þar sem fyrsta formúlan á að koma.

3. Formúla 1: Hægt er að setja saman formúlu á tvennan hátt. Eins og sést á myndinni hér til hliðar er hægt að skrifa einfaldlega cos(A)= a over c. Þetta er fljótlegasta og einfaldasta leiðin en kostar það að þú þarft að læra nokkrar skipanir á ensku.

Hin aðferðin er að nota Formula Elements tækjastikuna. Þá skrifar þú cos(A)= og smellir svo á hnappinn þá kemur cos(A)={<?>} over {<?>} á skjáinn og þú setur inn breyturnar í staðinn fyrir <?>.

4. Formúla 2: Eins og þú tekur eftir þá koma slaufusvigar utan um spurningamerkin. Slaufusvigi er gerður með því að halda niðri Alt Gr lyklinum og ýta á 7 eða 0. Það þarf að nota svona sviga til að grúppa saman breytur. Til dæmis í annarri formúlunni þá þarftu að gera A={B+C} over E ef slaufusviganum er sleppt yrði formúlan A=B+C/E

5. Formúla 3: Skipunin fyrir margföldunarmerki er cdot þannig að í þriðja formúlan er gerð með A={B cdot C} over {E cdot F}.

6. Formúla 4: Veldi eru gerð með hattinum ^ hann er gerður með því að halda niðri Alt Gr lyklinum og ýta á lykilinn sem gerir brodd yfir staf. Athugaðu að hatturinn sést ekki fyrr en ýtt er á bilslána. Þannig að 2^2 þýðir 22.

Formúla 4 er þá c^2=a^2+b^2

7. Formúla 5: Til að nota gríska bókstafi þarf að skrifa nafnið á þeim á milli prósentumerkja þannig að formúla 5 verður V={%pi% cdot d^2} over 4 cdot h ATH. Ef þú skrifar nafnið með lágstöfum færðu grískan lágstaf og er þú skrifar það með hástöfum færðu grískan hástaf. %delta%=δ %DELTA%=Δ

Formúla 6: Kvaðratrót er gerð með sqrt{} og allt sem er inni í slaufusvigunum kemur undir kvaðratrótarmerkið. Í formúlu 6 flækist málið aðeins því það þarf að gera sviga bæði til að sýna hvað er undir kvaðratrótarmerkinu og til að sýna hvað á að vera ofan við strik. En formúlan er svona %sigma%=sqrt{{%SIGMA%(x-%mu%)^2} over N}

Formúla 7: Til að gera háa sviga eins og í formúlu 7 þarf að gera left (, þ.e. orðið „left“ og vinstri sviga, og right ). Einnig Lætur OpenOffice vita ef það telur að eitthvað vanti, þannig að ef jafnaðarmerki stendur eitt og sér þá kemur spurningamerki á hvolfi. Til að losna við það setjum við prósentumerki aftan við jafnaðarmerkið. Formúlan verður þá left ( 155 over 126+15 right )cdot 7=%.

Formúla 8: Prósentumerkið hefur ákveðinn tilgang, til dæmis í sambandi við grísku stafina. Ef við viljum nota prósentumerkið sem prósentumerki þarf þess vegna að setja gæsalappir utan um það. Formúla 8 er þá einfaldlega 25 over 63 cdot 100=39,68"%".

Formúla 9: Til að setja formúlur í tvær línur þarf að nota skipunina newline. Tvöfalda örin er gerð með skipuninni drarrow (Double Right ARROW) ör til vinstri yrði þá dlarrow. Formúlan er þá svona: P=U cdot I cdot sqrt{3} cdot cos (%phi) drarrow newline U=P over {I cdot sqrt{3} cdot cos (%phi)}

Formúla 10: Stafur niðri er gerður með undirstriki (_) (Undirstrik er gert með Shift+Bandstrik) þannig að XL er gert X_L. Formúla 10 verður þá X_L=2%pi% cdot f cdot L

Formúlur 11 til 18: Athugaðu nú hvort þú getur ekki notað þá þekkingu sem þú ert nú öðlast og þær upplýsingar sem koma hér á eftir til að setja upp þessar formúlur.

i
Stafur Nafn Stafur Nafn
Α α Alpha Η η Eta
Ν ν Nu Τ τ Tau
Β β Beta Θ θ Theta
Ξ ξ Xi Υ υ Upsilon
Γ γ Gamma Ι ι Iota
Ο ο Omicron Φ φ Phi
Δ δ Delta Κ κ Kappa
Π π Pi Χ χ Chi
Ε ε Epsilon Λ λ Lambda
Ρ ρ Rho Ψ ψ Ps
Ζ ζ Zeta Μ μ Mu
Σ σ Sigma Ω ω Omega

Stafur bæði uppi og niðri. X_L^2 X_L^2 eða X^2_L (muna eftir bilunum á eftir hattinum) Um það bil 1,1≈1 1,1 approx 1 Punktur fyrir ofan staf m ˙m ˙^2 dot m eða {dot m}^2 ef það er veldi svo punkturinn lendi beint fyrir ofan emmið Plús Mínus merki ± +- til dæmis 46+-5 Ekki sama sem ≠ <> Heildunarmerki ∫ Int {} Margra stafa veldi x^(y-1) Veldið í slaufusviga x^{y-1} eða x^{1 over 2} n-ta rótin, t.d. ∛4 nroot {rótarvísir} {tala}

Hægt er að ræsa Math sérstakleg og vista formúlur sem .ODF skrár. Þá getur þú sett formúluna inn með skipuninni Insert >Object > Ole object. Velja Create from file og velja skrána. Þetta getur verið hentugt fyrir formúlur sem við þurfum að nota oft.

Nokkur reiknidæmi með OpenOffice.org Formula

1 cos(A)=a/c 2 A=(B+C)/E
3 A=(B⋅C)/(E⋅F) 4 c^2=a^2+b^2
5 V=(π⋅d^2)/4⋅h 6 σ=√((Σ〖(x-μ)〗^2)/N)
7 155/126+15⋅7= 8 25/63⋅100=39,68"%"
9 ■(P=U⋅I⋅√3⋅cos(φ)⇒@U=P/(I⋅√3⋅cos(φ))) 10 X_L=2π⋅f⋅L

Hér eru nokkur dæmi í viðbót.

11 X_c=1/(2π⋅f⋅C) 12 Z=√(R_L^2+X_L^2 )
13 >P=m ˙⋅c⋅Δt 14 Öryggisstuðull: π⋅78±5"%"
15 5+5≠7 16 ∫(2x+5)/(x^2-6x+9) dx
17 ∫_2^0 x^2+6x+9dx 18 K=∛(78+9)⋅〖89〗^(1/2)

Tenglar