Verkefni 16: Menntamál 1967

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

ÞESSI SÍÐA ER Í VINNSLU

Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:

• Setur upp ritgerð • Setur flókinn haus og fót

Menntamál 1967

1. Opnaðu skjalið 16verk og vistaðu það á þinni tölvu.

2. Stilltu allar spássíur á 2,5cm og blaðsíðustærðina á A4.

3. Breyttu Default stílnum þannig að hann sé Times New Roman 13pt. fulljafnaður.

4. Settu stílinn Heading1 á allar fyrirsagnir og Heading 2 á undirfyrirsagnir.

5. Breyttu Heading 1 þannig að hann verði Arial 22pt, feitletraður og miðjaður.

6. Í kaflanum „Ný viðhorf í reikningskennslu“ er bein tilvitnun. Dragðu þennan texta inn um 2cm frá báðum hliðum og skáletraðu hann.

7. Hafðu þennan skáltetraða texta valinn og smelltu á hnappinn lengst til hægri á Styles and formatting glugganum (New Style from Selection) . Kallaðu þennan stíl Tilvitnun.

Við þetta verður til stíllinn Tilvitnun sem hefur sama útlit og textinn sem valinn er.

8. Settu stílinn Tilvitnun á tvær aðrar tilvitnanir í textanum.

9. Búðu til forsíðu að eigin vali.

10. Það á ekki að vera haus á fyrstu tveimur síðunum, þ.e. forsíðunni og efnisyfirlitinu. Það þarf smá undirbúning fyrir þetta. Það á eftir að búa til síðu fyrir efnisyfirlitið svo að byrjað er á því að setja bendilinn fyrir framan „Formáli“ og fara í Insert > Manual Break. Veldu Default í Style. Við þetta verða til blaðsíðuskil sem eru líka kaflaskil og nú getum við gefið síðunum sem eru ofan við skilin ákveðinn stíl og síðunum neðan við skilin einhvern annan stíl. Breyttu stílnum á línunni á nýju síðunni úr Heading 1 í Default. Vertu á annarri hvorri síðunni ofan við síðuskilin og settu síðustílinn Index á þær síður.

11. Settu efnisyfirlit á síðu 2 og láttu fyrirsögn þess fá stílinn Heading 1.

12. Settu inn haus á Default síðurnar með Insert > Header > Default. Þá ættu að opnast reitir fyrir haus á öllum síðum aftan við Efnisyfirlitið.

13. Ekki á að hafa það sama í haus á hægri og vinstri síðum. Farðu í Format > Page og þar í Header flipann og taktu hakið úr Same content Left/Right. Vertu á vinstri síðu, þ.e. síðu sem er með oddatölunúmer (3,5,7 eða 9) og skrifaðu „Menntamál 1967“. Gerðu eins haus á hægri síðu nema hafðu textann hægra megin.

14. Notaðu sömu aðferð til að setja blaðsíðutal í fótinn.

15. Settu áherslupunkta á tilvitnunina í Aðalnámskrá á síðu 7

16. Færðu Heimildaskrána á sér síðu og lagaðu hana til samkvæmt fyrirmynd. Uppfærðu efnisyfirlitið.


Tenglar