Verkefni 15: Internetið er sjóðandi heitt
Úr OpenOffice.is
Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:
- Setur upp tímaritsgrein
- Setur texta inn í teikniform
- Setur inn myndir
- Býrð til Drop Cap
- Notar töflu til að móta texta
Internetið er sjóðandi heitt
1. Opnaðu 15verk og vistaðu það á svæðið þitt. ATH: Þetta verkefni er að miklu leiti eins og verkefni 12
2. Spássíur eru 1,5cm allann hringinn.
3. Megintextinn (Default) er Times New Roman 12pt., fulljafnað.
4. Titillinn er Arial Feitletraður, 44pt miðjaður og fölgrænn á litinn (Green 4).
5. Undirtitillinn er miðjaður og skáletraður.
6. Bilið á milli dálkanna er 0,8cm breitt og línan í því er 0,05pt sver.
7. Fyrirsagnir eru Heading 1. Útlitið er Arial 16pt, hægrijafnað með línu undir. Liturinn bæði á textanum og línunni er sá sami og á titlinum. (Green 4)
8. Innrammaði textinn er miðjaður og skáletraður. Bilið frá aðaltextanum að rammanum er 0,5cm (Hægrismella > Frame... > Wrapping flipinn, stilla Spacing left og right á 0,5cm)
Taktu línurnar af rammanum í Borders flipanum.
9. Textinn INTERNET fyrir neðan innrammaða textann er gerður með því að teikna form og skrifa inn í það. Veldu ferhyrning á teiknistikunni. Músarbendillinn breytist í kross. Teiknaðu ferhyrning í skjalið með því að draga á ská. (sjá mynd)
ATH: Teiknistikan er yfirleitt neðst á skjánum. Ef hún er ekki þar þá þarftu að velja View > Toolbars > Drawing.
10. Til að setja texta inn í ferninginn þá tvísmellir þú á reitinn. Textinn er Arial Black, 22pt, feitletrað, miðjað og liturinn á textanum er hvítur.
11. Þegar ferhyrningurinn er valinn ætti að birtast stika efst með stillingum fyrir teikningar. Breyttu bakgrunnslitnum á ferhyrningunum í rauðan og taktu burt línuna utan um hann.Hægrismelltu á ferhyrninginn og veldu Wrap > Page Wrap.
12. Hægrismelltu aftur og veldu Wrap > Edit... stilltu þar left og right á 0,5cm.
13. Stóra Effið í upphafi textans er svo kallað Drop Cap. Það gerir þú með því að vera með bendilinn í fyrstu efnisgreininni (Þú þarft ekki að velja Effið) farðu í Format > Praragraph > Drop Caps. Stilltu eins og myndin sýnir:
14. Auglýsingin á síðu tvö er næst. Það er smá handavinna að búa hana til. Byrjaðu á að setja ramma með Insert > Frame. Lagaðu stærðina og staðsetninguna nokkurn vegin eins og á fyrirmyndinni. Taktu línuna af rammanum.
15. Settu 2x10 töflu inn í rammann. Sameinaðu reitina í fjórum efstu línunum og sláðu inn texta eins og á myndinni.
16. Taktu línurnar af rammanum en hafðu rauða línu (Light red) utan um töfluna sjálfa en engar línur milli reita.
17. Settu myndina www2.jpg í línu tvö í töflunni. Myndina finnur þú á Moodle.
18. Hægrismelltu á efstu línu töflunnar og farðu í Table... þá kemur upp Table Properties glugginn. Farðu í Background flipann og veldu sama rauða lit og þú notaðir í lið 16.
19. Veldu allar hinar línurnar í töflunni og settu ljósgráan bakgrunn á þær.
20. Veldu neðstu línuna í töflunni (tómu línuna) breyttu stafastærðinni í 6pt (línan lækkar við þetta) settu svo rauðan bakgrunn á hana og þá ætti þetta að líta út svipað og myndin hér fyrir neðan.
21. Gerðu haus og fót eins og á fyrirmyndinni. Bakgrunnurinn er rauður og textinn er Arial 10pt. ATH: Það er bannað að nota bilslána til að færa til textann. Gott er að nota töflu. Sjá myndir.
Haus: Tafla 3x1
Fótur: Tafla 3x2
Myndin www2.jpg:





