Verkefni 14: Miðaldir

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

ÞESSI SÍÐA ER Í VINNSLU

Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:

  • Setur mismunandi stílsnið á texta í ritgerð
  • Setur neðanmálsgreinar inn í ritgerð
  • Setur inn myndir
  • Setur texta við myndir
  • Setur efnisyfirlit inn í ritgerð
  • Setur fót með blaðsíðutali

Miðaldir

1. Sæktu skjalið 14verk og vistaðu það á þínu svæði.

2. Byrjaðu á því að setja stílsniðið Text body á allan texta. Þú ýtir á Ctrl+A til að velja allan textann Síðan getur þú valið stílinn Text body í fellilistanum á Formatting stikunni og þá breytist textinn.

Stíllinn Text Body valin af stílalistanum

3. Í þessu skjali eru margar neðanmálsgreinar. Búið er að setja u.þ.b. helming þeirra á sína staði, en enn er eftir að setja átta þeirra inn. Þú finnur texta neðanmálsgreinanna aftast í vinnuskjalinu. Settu neðanmálsgreinarnar inn eina í einu með því að afrita þær aftast í verkefninu og setja þær inn á réttan stað. Staðsetning neðanmálsgreinann er merkt með rauðu xxx og númeri í textanum, notaðu Edit > Find (CTRL+F) til að finna xxx í textanum, eyddu burt xxx og númerinu og settu rétt inn neðanmálsgrein. Athugaðu að neðanmálsgreinarnar raðast rétt inn. Ef þú setur nýja grein á milli tveggja annarra, þá breytist númerun þeirra sem á eftir koma sjálfkrafa.


Mynd:Athugadu.jpgEf textinn er límdur beint í neðanmálsgreinina með Edit > Paste (CTRL+V), þá ruglast útlitið á henni. Til að koma í veg fyrir það, þá veljum við Edit > Paste Special (CTRL+Shift+V) og smellum á Unformatted text og síðan OK. Þá tekur textinn á sig það stílsnið sem fyrir er.

4. Settu stílinn Heading 1 á fyrirsagnir og Heading 2 á undirfyrirsagnir.

Á myndinni hér fyrir neðan getur þú séð hverjar fyrirsagnirnar eru. Inndregnu línurnar á myndinni eru Heading 2 en hinar Heading 1. (Ekki búa til þennan inndrátt)

Fyrirsagnir

5. Vertu með bendilinn í einhverri fyrirsögninni og veldu Format > Bullets and Numbering, farðu í Outline flipann og veldu þriðja útlitið í neðri röðinni. Nú ættu fyrirsagnirnar að númerast með 1,2,3 og undir fyrirsagnirnar á fá undirnúmer 1.1, 1.2

6. Næst skaltu setja inn myndir á réttan stað eins og sýnt er á fyrirmyndinni. Myndirnar eru allar listaðar neðst á þessari síðu og þú ættir að sækja þær allar núna og vista þær á svæðið þitt. Til að setja myndir í textann skaltu setja ritbendilinn á þann stað sem þú vilt hafa myndina nokkurn veginn og síðan smella á Insert > Picture > From File. Lagaðu til stærð og legu myndanna og stilltu hvernig textinn flæðir kringum þær.

Hafðu 0,5cm bil hægra og vinstra megin við myndirnar og 0,2cm fyrir ofan og neðan.


Mynd:Athugadu.jpgÞú getur þurft að laga til blaðsíðuskilin um leið til að koma myndum á réttan stað.

7. Til að setja inn texta með myndunum skaltu hægri smella á myndina og velja Caption. Þá færðu upp glugga þar sem þú getur sett inn textann og síðan breytt ýmislegu í sambandi við hann eins og til dæmis númerun, staðsetningu og svo framvegis (þú finnur myndatextana aftast í vinnuskjalinu). Smelltu á litlu örina á Category listanum og veldu <None> til að myndirnar verði ekki númeraðar. Gerðu þetta við allar myndirnar í þessu skjali.

Myndartexti skilgreindur

8. Lagaðu útlit myndatextanna þannig að þú ferð með bendilinn inn í einhvern myndatextann þá sérðu í stílalistanum að hún hefur stílinn Caption. Breyttu þessum stíl þannig að stærðin sé 10pt og hann sé miðjaður. Annað óbreytt.

9. Næst skaltu búa til forsíðu. Ýttu á Ctrl+Home til að fara á upphafsstað á textanum og ýttu á Ctrl+Enter til að búa til nýja síðu. Þar sem fyrsta línan í skjalinu er Heading 1 þá færist sá stíll á efnisgreinina sem er á nýju síðunni. Það sem þarf að gera er að breyta stílnum í Text Body á þessari línu á nýju síðunni. Gerðu forsíðuna svipaða þeirri sem sem sýnd var í verkefni 13, en gefðu henni heitið „Frá miðöldum til endurreisnar“.

10. Farðu neðst á forsíðuna og búðu til nýja síðu.

11. Til að setja inn efnisyfirlit skaltu setja ritbendilinn á nýju síðuna og velja Insert > Indexes and Tables > Indexes and Tables. Þar ritarðu Efnisyfirlit sem titil og smellir á Ok.

Efnisyfirlitið sett inn

12. Það á að koma fótur með blaðsíðutali í ritgerðina. Þessi fótur á að koma á allar síður nema forsíðuna. Til að þetta sé mögulegt þarf að segja forritinu að það sé forsíða í skjalinu. Það gerir þú með því að vera á forsíðunni með bendilinn og fara í síðustíla (Page Styles) í stílaglugganum (Sjá mynd) og tvísmella á stílinn Fyrst Page. Núna skaltu setja inn fót með blaðsíðutali á ritgerðina. Insert > Footer >default. Þá kemur bara fótur á síður með sem hafa síðustílinn Default, þ.e. allar síður nema forsíðuna.

Síðustíll valinn

13. Hafðu Heimildirnar á sér síðu með því að setja blaðsíðuskil fyrir framan fyrirsögnina.

14. Nú er efnisyfirlitið líklega ekki rétt þar sem Heimildirnar hafa færst yfir á nýja síðu. Lagaðu þetta með því að hægrismella á efnisyfirlitið og velja Update Index/table.

15. Lagaðu útlit heimildanna þannig að nöfn bókanna sem vísað er í séu skáletruð. Dragðu allar heimildirnar inn um 1,5 cm frá vinstri.

16. Þegar þú ert búinn að öllu þessu skaltu smella á forskoðunarhnappinn í verkfærastikunni og skoða ritgerðina vel og vandlega áður en þú vistar og lokar. Á fyrirmyndinn hér að aftan er forsíðunni sleppt (til að spara pláss).


Lokaútlit skjalsins
Lokaútlit skjalsins
Lokaútlit skjalsins
Lokaútlit skjalsins

Þetta skjal á .PDF formi


Myndir:


Tenglar