Verkefni 13: Talnakerfi
Úr OpenOffice.is
Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:
- Opnar skjal
- Býrð til forsíðu
- Notar Find and Replace til að skipta út texta.
Talnakerfi
1. Opnaðu skjalið 13verk
2. Byrjaðu á að stilla spássíur í Format > Page og hafðu þær speglaðar.
Þá eru ekki lengur hægri og vinstri spássíur heldi Innri og Ytri, Stilltu innri á 2,5cm og ytri á 2cm Þetta gerir það að verkum að ef ritgerðin er bundin þá verður spássían 2,5cm inn við kjölinn á báðum síðum opnunnar
3. Breyttu líka blaðsíðustærðinni í A4
4. Búðu til nýjann stíl sem byggir á Default stílnum. Kallaðu þennan stíl Meginmál
5. Settu nýja stílinn á allan textann. Ef þú finnur ekki stílinn í listanum stilltu þá á Custom Styles neðst í Styles and Formatting glugganum.
6. Breyttu nýja stílnum þannig að hann verði Arial, 12pt, ekki feitletrað og fulljafnaður.
7. Búðu til auða síðu fremst í skjalið með því að setja bendilinn alveg fremst, fyrir framan orðið „Talnakerfi“ og ýta á CTRL+Enter. Búðu til forsíðu eins og sýnd er hér fyrir neðan. Taktu eftir hvar og hvernig dálklykilinn TAB er notaður.
8. Settu næst Heading 1 stíl á allar fyrirsagnirnar.
9. Breyttu Heading 1 stílnum í Arial bold 16pt. Hafðu 0,5cm bil fyrir ofan og neðan (Indents and Spacing flipinn, Above og Below). Dragðu líka textann inn um 7,5cm frá hægri (After text)
Settu 0,5pt línu undir fyrirsögnin og 5pt línu við endann á henni (Borders Flipinn)
10. Á nokkrum stöðum í skjalinu eru stjörnur (*) notaðar sem margföldunarmerki. Skiptum þessum stjörnum út fyrir punkt (•) og notum til þess skipunina Edit > Find and Replace. Sú skipun er notuð til að finna einhvern texta og einnig hægt að láta hana skipta út texta. Flýtileið í þessa skipun er CTRL+F.
Settu stjörnu í Search For reitinn, prófaðu að ýta á Find. Þú ættir að sjá að forritið finnur stjörnur í skjalinu.
11. Settu punkt í Replace With. En þar sem þessi punktur er ekki á lyklaborðinu þá þarf að fara að eins lengri leið:
Hægrismelltu á Replace With reitinn og veldu Special Character. Veldu General Punctuation í listanum og finndu punktinn (U+2022). Þegar þessu er lokið ætti að vera óhætt að ýta á Replace All og þá skiptir forritið út stjörnunum með punktum.
Í einhverjum tilfellum virkar Special Character valið ekki eins og hér var lýst. Þá þarf að setja punktinn inn með því að ýta á CTRL+shift+U á lyklaborðinu og rita 2022 og bil. Þá kemur táknið inn eins og að á að gera.
12. Í tveimur fyrstu töflunum eru tölur með veldum. Settu veldistölurnar upp með Superscript (Format > Character). Þetta eru nokkuð margar tölur þannig að hér er rakið að nota flýtileiðina CTRL+Shift+P eða útlitsafritun með
hnappnum.
13. Lagaðu útlit taflanna í skjalinu samkvæmt fyrirmynd.
14. Lagaðu blaðsíðuskilin. Það er hálf kjánalegt ef síða byrjar á töflu eða endar á fyrirsögn. Lagaðu blaðsíðuskilin samkvæmt fyrirmyndinni þannig að þú setur bendilinn framan við þann texta sem þú villt að fari niður á næstu síðu og ýtir á CTRL+Enter.
15. Að lokum setur þú inn efnisyfirlit.
- a) Byrjaðu á að búa til auða síðu á eftir forsíðunni með því að setja bendilinn aftast á forsíðuna og ýta á CTRL +Enter.
- b) Ýttu nokkrum sinnum á Enter til að færa bendilinn aðeins neðar á síðuna.
- c) Farðu í Insert > Indexes and Tables > Indexes and Tables.... Sláðu inn „Efnisyfirlit“ í Title og passaðu að Table of Contents sé valið í Type.
- d) Farðu í í Styles flipann og veldu Title í listanum vinstra megin (Levels) og tvísmelltu svo á Heading 1 í listanum hægra megin (Styles) til að titillinn fái stílinn Heading 1.
- e) Gerðu eins til að láta Level 1 fá stílinn Meginmál.
16. Vistaðu skjalið og skilaðu því til kennara.

