Verkefni 12: Jeppar algengustu forstjórabílarnir

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:

  • Opnar skjal
  • Setur texta í dálka
  • Setur texta í ramma
  • Skiptir orðum milli lína

Jeppar algengustu forstjórabílarnir

1. Opnaðu skjalið 12verk og vistaðu á þinni tölvu.

2. Breyttu Default stílnum þanng að hann sé Times New Roman 13pt, fulljafnaður.

3. Breyttu Titillínunum báðum þannig að þar séu hástafir, stafagerðin Arial, feitletruð og stærð 42pt.

Ekki breyta stærðinni á tómu línunni sem er á milli.

Settu svartan bakgrunn á báðar línurnar en ekki á tómu línuna.

4. Miðjaðu undirtitillinn og skáletraðu hann.

5. Finndu fyrirsagnirnar í textanum og settu á þær stílinn Heading 1.

6. Breyttu Heading 1 stílnum þannig að hann sé Arial, 14pt, vinstri jafnaður.

7. Merktu allan textann fyrir neðan fyrirsagnirnar (frá „Þótt jeppaeign ...“ aftur fyrir „...4,2 milljónir.“ og settu hann í tvo dálka. Format > Columns. Hafðu 1cm á milli dálkanna

Dálkastilling sett á tvo dálka

8. Innrammaðu textann „Yfir 30 þúsund í viðbótarskatt á mánuði“ til og með „rekur hins vegar bílinn“ (ætti að vera neðarlega í dálk 1 á síðu 1 og ná yfir í dálk 2). Gerðu það með því að merkja textann og fara í Insert > Frame. Þú þarft svo bara að ýta á OK í glugganum sem kemur, þar þarf ekki að breyta neinu.


Mynd:Upplysingar.jpgRamminn hegðar sér líkt og mynd. Nema þú þarf að smella á rammann sjálfan til að velja hann. Þegar ramminn er valinn (Grænu ferningarnir sýnilegir) þá er hægt að draga hann til og breyta stærðinni eins og um mynd væri að ræða.

9. Hægri smelltu á rammann og stilltu þannig að textinn flæði utan um hann (Page Wrap) og lagaðu stærð hans og staðsetningu nokkurnvegin eins og á fyrirmyndinni.

10. Miðjaðu textann sem er í rammanum. Breyttu fyrirsögninni sem er inni í rammanum í Arial og hafðu hana rauða. Skáletraðu restina af textanum í rammanum. Taktu sýnilegu línurnar af rammanum (Hægrismella > Frame... > Borders flipinn)

11. Skiptu textanum milli lína. Þegar texti er fulljafnaður þá teygir forritið bilin á milli orðanna til að gera allar línur jafn langar. Þegar línurnar eru orðnar stuttar eins og í dálkunum verður því mikilvægt að skipta orðum milli lína. Ef íslensk orðabók er í forritinu er hægt að láta hana gera þetta fyrir okkur en til að byrja með skaltu gera þetta handvirkt.

Líttu yfir textann og þá sérðu á nokkrum stöðum óeðlilega stór bil milli orða. Þar sem þessi bil eru þarf að skipta fyrsta orðinu í línunni fyrir neðan.

Þú skiptir orðinu með því að ýta á CTRL+Bandstrik. Ekki gera bara bandstrik þó það virðist gera það sama.

Farðu yfir allan textann lagaðu þetta þar sem þér finnst það eiga við.

Orðskipting sett á orð

12. Settu inn myndir eins og á fyrirmyndinni.

13. Settu haus í skjalið og ritaðu þar BÍLAR og hafðu þrjú bil fyrir framan orðið og þrjú bil fyrir aftan það. Miðjaðu orðið.

14. Settu rauðan bakgrunn á hausinn með Mynd:Hnappur-fill-color.png hnappnum.

15. Settu hvítan bakgrunn á orðið BÍLAR og auka bilin fyrir framan og aftan. Þetta þarf að gera með Highlighting hnappnum Mynd:Hnappur-highlite.png.

16. Settu fót á skjalið eins og á fyrirmyndinni. Hafðu sama rauða bakgrunn og í hausnum og gerðu stafina hvíta.


Mynd:Upplysingar.jpgÍ staðinn fyrir að nota Highlight hnappinn til að gera hvítt í kringum orðið BÍLAR er líka hægt að velja orðið og bilin og síðan velja Format > Character > Background og smella þar á hvítan lit.

Loka útlit á verkefni 12.

ATH: síða 3 ekki sýnd!


þetta verkefni á .PDF formi.

Tenglar