Verkefni 11: Ungversk gúllassúpa

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita


Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:

  • Opnar skjal
  • Færir til texta
  • Raðar texta
  • Setur íslenskar gæsalappir

Ungversk gúllassúpa

1. Opnaðu skjalið 11verk og gerðu á því eftirfarandi breytingar

2. Ein efnisgrein neðarlega í skjalinu byrjar á orðunum „Nú eru ...“. Afgangurinn af þessari efnisgrein hefur hrokkið aftast í skjalið. Veldu alla síðustu efnisgreinina sem byrjar „ 10 til ...“ og endar „...(Terror Vermium).“ með því að fjórsmella eða draga yfir hana, og færðu hana á sinn stað. Annað hvort með því að draga hana með músinni eða nota, klippa (Edit > Cut eða CTRL+X) og Líma (Edit > Paste eða CTRL+V)

3. Ein efnisgrein hefur af einhverjum orsökum öll ritast með hástöfum. Veldu hana alla með því að fjórsmella eða draga yfir hana og skiptu úr hástöfum í lágstafi með Format > Change Case > Lowercase. Nú þarftu að lesa efnisgreinina vandlega yfir og setja stóra stafi alls staðar þar sem þeir eiga að vera.

4. Efst í skjalinu stendur „Súpustofnun – skýrsla“. Settu hástafi á þennan texta (Format > Change Case), miðjaðu hann og gleiðletraðu um 2pt.

5. Ýttu á TAB fyrir aftan „Ungversk gúllassúpa“ ofarlega í skjalinu sláðu svo inn textann „Ungverskur njálgabani“. Þá ættu þessi tvö nöfn að vera sitthvoru megin á síðunni.

Gerðu svo eins með „(Vermifuga Hungarica Antiqua)“ og „(Terror Vermium)“

Feitletraðu og skáletraðu eins og á fyrirmyndinni.

6. Miðjaðu textann „Þessi uppskrift er hin eina rétta !!!“

7. Lagaðu til töfluna með varnaðarorðunum „Varist eftirfarandi!“ með því að mjókka vinstri dálkinn og setja áherslumerki á textann í hægri dálknum með Format > Bullets and Numbering. Taktu allar sýnilegar línur af töflunni.

8. Miðjaðu og feitletraðu textann „Ungversk gúllassúpa (Vermifuga Hungarica Antiqua)“. Settu dökkan (svartan) bakgrunn á hann. Nú ætti textinn að verða hvítur. Ef ekki, þá þarftu að setja hvítan lit á textann.

9. Veldu allan textann frá „2 Bein ...“ til „...Ekki smjörlíki!)“ Raðaðu nú þessum texta í rétta röð með Tools > Sort. Ekki þarf að breyta neinu í glugganum sem kemur, bara ýta á OK.

Nú sérðu að efsta lína er auð, síðan kemur 1 og svo 10 til 14. Færðu línur 10 til 14 niður fyrir línu 9 og eyddu auðu línunum í burtu.

10. Veldu allar númeruðu línurnar. Nú þarf að inndraga þær og setja inn dálkstillingar.

  • Veldu Format > Paragraph og smelltu á Indents & spacing flipann. Þar skaltu setja 3,00 cm í Indent Before Text reitinn.
  • Smelltu á Tabs flipann og settu vinstra dálkahak í 4 cm og hægra dálkahak með punktalínu í 14 cm.
  • Nú þarf að setja tvö dálkmerki í hverja línu til að raða töflunni upp. Settu bendilinn á milli tölunnar og textanns í hverri línu og ýttu tvisvar á dálklykilinn á lyklaborðinu (TAB).

11. Settu upp efnislistann fyrir Njálgabanann eins og efnislistann fyrir súpuna.

12. Notaðu Google myndaleit til að finna fallega mynd af súpuskál og settu hana neðst í skjalið. Það kemur upp gott úrval mynda ef þú notar orðin „soup clip art“ og velur „Myndir“ (Images).

13. Stilltu Writer til að nota Íslenskar gæsalappir. Farðu í Tools > Auto Correct Options og þar í Custom quotes flipann. Veldu fremri gæsalappir með því að smella á hnappinn aftan við Start quote og settu inn gæsalappir niðri (U+201E). (Veldu General punctuation í Subset listanum til að finna gæsalappirnar). Gerðu eins fyrir aftari gæsalappirnar (U+201C)

Gæsalöppum breytt í íslenskar

Þegar þetta er komið þá getur þú lagað gæsalappirnar utan um kveðju heilags Stefáns í síðustu efnisgreininni með því að eyða þeim og setja nýjar.


Loka útlit á verkefni 11

Þetta verkefni á .PDF formi

Tenglar