Verkefni 10: Ferð með fiskirannsóknarskipinu Thor
Úr OpenOffice.is
Í þessari æfingu gerir þú eftirfarandi:
- Opnar skjal
- Breytir spássíum og blaðsíðustærð
- Breytir Default stílnum
- Setur litla hástafi. (Small Capitals)
- Gleiðletrar texta
- Setur inn og formar myndir
Ferð með fiskirannsóknarskipinu Thor
1. Opnaðu skjalið 10verk og vistaðu það inn á þitt svæði.
2. Stilltu spássíur þannig að hægri/vinstri séu 1,5 cm og uppi/niðri óbreyttar (2 cm). Hafðu blaðsíðustærðina A4.
3. Breyttu stílnum Default þannig að hann sé Times New Roman, 12pt, fulljafnaður (Justified) og fyrsta lína hverrar efnisgreinar sé inndregin um 0,5 cm (First line). Sjá mynd.
4. Breyttu fyrirsögninni þannig að hún sé URW Bookman L, 22pt. Taktu fyrstu línu inndráttinn af henni í Format > Paragraph og miðjaðu hana.
5. Taktu líka fyrstu línu inndráttinn af nafni höfundar, miðjaðu og skáletraðu.
6. Í annarri efnisgrein í textanum stendur „2-21/2 mílu...“ breyttu þessu í „2-2½ mílu“ með því að fara í Insert > Special Character og finna táknið ½. (taktu feitletrunina af 2 ½, þar sem það var bara feitletrað til að það væri auðveldara að finna það).
7. Neðarlega í textanum eru nokkur latnesk heiti í svigum, feitletruð. Breyttu þeim í 2pt gleiðletrun og taktu feitletrunina af.
8. Nú er komið að því að setja inn myndir. Byrjaðu á því að finna myndir á netinu. Finndu myndir af eftirfarandi:
Vistaðu þessar myndir inn á þitt svæði.
9. Byrjaðu á að setja inn myndina af skipinu. Farðu í Insert > Picture > From File... og finndu myndina sem þú varst að vista. Myndin kemur einhversstaðar inn í skjalið, það fer eftir hvar bendillinn var þegar þú settir hana inn. Það skiptir engu máli til að byrja með hvar hún lendir. Þú færir hana seinna.
10. Lagaðu stærð myndarinnar nokkurn veginn eins og hún á að vera. Þetta gerir þú með því að fara með bendilinn yfir eitt horn myndarinnar og draga það til.
| Haltu niðri Shift hnappnum meðan þú dregur, það kemur í veg fyrir að þú ruglir hlutföllum myndarinnar. |
11. Stilltu myndina þannig að textinn flæði utan um hana. Þetta gerir þú með því að hægrismella á myndina og velja Wrap > Page Wrap. Dragðu svo myndina nokkurn veginn á réttan stað.
12. Textinn fer of nálægt myndinni þannig að þú skalt laga það. Það gerir þú með því að hægrismella á myndina og velja Picture... og fara í Wrap flipann. Stilltu þar Spacing þannig að bilið sé 0,3 cm til hægri og vinstri og 0,1 cm fyrir ofan og neðan.
13. Settu myndatexta á myndina. Það gerir þú með því að hægrismella á myndina og velja Caption.
Ef orðið „Mynd“ finnst ekki í Category, þarf einfaldlega að skrifa það.
14. Þar sem útlitið á myndatextanum er byggt á Default stílnum þurfum við að taka fyrstu línu inndráttinn af myndatextanum með stikunni eða með Format > Paragraph.
| Ef þú þarft að færa til myndina eftir að myndatextinn er kominn á verður þú að passa að færa ekki bara myndina heldur rammann sem er utan um myndina og myndatextann. |
15. Notaðu sömu aðferð til að setja inn myndina af gulllaxinum (mynd 2).
16. Settu inn myndina af stórkjöftunni, lagaðu stærðina á henni, stilltu á Page Wrap og dragðu hana nokkurn veginn á réttan stað.
17. Hægrismelltu á stórkjöftuna og veldu Wrap > Contour. Með þessari aðferð leyfum við textanum að flæða yfir hvít svæði í myndinni.
18. Settu myndina af spærlingnum á réttan stað.
19. Settu haus og fót í skjalið samkvæmt fyrirmyndinni. Mundu að setja línurnar og taktu fyrstu línu inndráttinn af haus og fæti.


