Uppsetning OpenOffice.org á Windows
Úr OpenOffice.is
Uppsetning OpenOffice.org fyrir Microsoft Windows notar MSI pakka. MSI staðlað forrit til uppsetningar á hugbúnaðarpökkum í Microsoft Windows.
Venjuleg uppsetning OpenOffice.org á Windows
Öllum skrám til uppsetningar OpenOffice.org er þjappað saman í eina safnskrá, ef OpenOffice.org er sótt á netinu. Þessa safnskrá verður að afþjappa áður en hægt er að keyra sjálfan MSI pakkann. Eftir uppsetningu má eyða þessum uppsetningaskrám, einnig safnskránni sem náð var í á netinu.
Til að afþjappa uppsetningaskrárnar :
- Tvísmella á uppsetningaskrána sem halað var niður af netinu eða ræsa hana af skipanalínu.
- Undirbúningsforrit OpenOffice.org uppsetningar (Installation Preparation Wizard) kemur í ljós.
- Smella á Áfram/Next.
- Velja úttaksmöppu/Destination Folder til að afpakka skránum í. Oft er notuð mappa á skjáborði.
- Þegar öllum skránum hefur verið afþjappað, ræsist sjálft uppsetningaforrit OpenOffice.org uppsetningarinnar (Installation Wizard) og samskiptagluggi þess kemur upp. Farið eftir leiðbeiningunum í þessum glugga, yfirleitt er hægt að láta sjálfgefið val ráða ferðinni.
- Þegar uppsetningaforrit OpenOffice.org (Installation Wizard) hefur fengið allar nauðsynlegar upplýsingar, kemur upp gluggi með útlistun á því sem hefur verið valið. Þá má smella á Já/Yes til að staðfesta, uppsetningin fer í gang og þegar henni er lokið þarf að smella á Ljúka/Finish til að loka uppsetningaforritinu.
Eftir að uppsetningu OpenOffice.org er lokið má eyða möppunni með uppsetningaskránum, og jafnvel einnig safnskránni sem náð var í á netinu.
Sérsniðin uppsetning OpenOffice.org á Windows
Öllum skrám til uppsetningar OpenOffice.org er þjappað saman í eina safnskrá, ef OpenOffice.org er sótt á netinu. Þessa safnskrá verður að afþjappa áður en hægt er að keyra sjálfan MSI pakkann.
Til að afþjappa uppsetningaskrárnar :
- Tvísmella á uppsetningaskrána sem halað var niður af netinu eða ræsa hana af skipanalínu.
- Undirbúningsforrit OpenOffice.org uppsetningar (Installation Preparation Wizard) kemur í ljós.
- Smella á Áfram/Next.
- Velja úttaksmöppu/Destination Folder til að afpakka skránum í.
- Þegar öllum skránum hefur verið afþjappað, ræsist sjálft uppsetningaforrit OpenOffice.org uppsetningarinnar (Installation Wizard) og samskiptagluggi þess kemur upp. Ekki fara eftir leiðbeiningunum. Skiljið gluggann eftir opinn og afritið afþjöppuðu uppsetningaskrárnar í einhverja aðra möppu.
- Smella á Hætta við/Cancel í uppsetningaforriti OpenOffice.org (Installation Wizard), smella á Já/Yes til að staðfesta, og smella síðan á Ljúka/Finish til að loka uppsetningaforritinu.
Eftir þetta má nota uppsetningaskrárnar til ýmissa sérsniðinna uppsetninga; fjölnotenda, hljóðlátra, o.s.frv.
Fyrir kerfisstjóra: ekki eru allir rofar MSI (Microsoft Software Installer - t.d. /J{m|u}) studdir af OpenOffice.org uppsetningapakkanum. Nánari upplýsingar um uppsetningu OOo í Windows kerfum fást hér
