Unnið með teiknitól Writer
Úr OpenOffice.is
Hægt er að nota teiknitól Writer til að búa til teikningar, eins og einfaldar skissur með ferningum, hringum, strikum, texta og öðrum fyrirfram skilgreindum formum. Einnig er hægt að grúppa nokkra teiknihluti til að öruggt sé að þeir haldi hlutfallslegri stærð og afstöðu.
Hægt er að setja teiknihluti beint á síðu í skjalinu þínu, eða setja þá í ramma.
Einnig er hægt að nota teiknitólin til að merkja á myndir, skjámyndir og annað myndefni búið til með öðrum forritum, en við mælum ekki með því vegna þess að :
- ekki er hægt að grúppa saman myndir og teiknihluti og því getur afstaða þeirra breyst í skjalinu.
- ef þú breytir Writer skjalinu í annað skjalform, eins og t.d. HTML, þá haldast myndir og teiknihlutir ekki saman; þau eru vistuð hvert í sínu lagi.
Almennt séð er líklega best að búa flóknar teikningar til með OpenOffice.org Draw, en þar eru margir fleiri kostir, eins og lagskiptingar, stílar o.s.frv.
Efnisyfirlit |
Teiknihlutir búnir til
Til að byrja að nota teiknihluti er kveikt á Teiknistikunni (sjá mynd 1) með því að velja View > Toolbars > Drawing á valstikunni.
Ef þú ætlar að nota teiknitólin oft og mikið, þá er hægt að rífa stikuna lausa og færa hana á þægilegan stað á skjánum
|
1 Val 2 Strik 3 Ferningur 4 Hringform |
5 Frjálst strik 6 Texti 7 Talbóla 8 Grunnform |
9 Tákn 10 Örvar 11 Flæðirit 12 Talbóla |
13 Stjörnur 14 Punktar 15 Fontwork gallerý 16 Úr skrá 17 Þrívídd Á/Af |
Til að nota teiknitól:
- Smelltu í skjalið þar sem þú vilt að teikningin festist. Þú getur breytt staðsetningu akkersins seinna.
- Veldu tólið af Teiknistikunni (sjá mynd fyrir ofan). Músarbendillinn breytist í teiknibendil.
- Settu krosshárabendilinn á staðinn þar sem þú vilt að teikningin sé og smelltu og dragðu til að búa til teiknihlutinn. Slepptu músarhnappnum. Valin teikniaðgerð helst virk og því getur þú teiknað annan eins hlut.
- Til að slökkva á teikniaðgerðinni er hægt að ýta á ESC lykilinn á lyklaborðinu eða smella á valtólið (örina) á teiknistikunni.
- Nú getur þú breytt hlutnum (grunnlit, strikgerð og breidd, festingu og öðru) með annað hvort Drawing Object Properties hnappastikunni (sjá mynd 2) eða kostina og talglugga sem koma upp ef hægri-smellt er á hlutinn.
Eiginleikar teiknihluta stilltir eða þeim breytt
Til að stilla eiginleika á teiknihluti áður en þeir eru teiknaðir:
- Smelltu á Val hnappinn á teiknistikunni.
- Smelltu á eiginleikana á Drawing Object Properties stikunni og veldu gildin sem þú vilt hafa.
- Fyrir betri stjórn eða til að skilgreina nýja eiginleika, þá er hægt að smella á Area eða Line táknmyndirnar á stikunni til að sjá nákvæmari talglugga.
Þau sjálfgefnu gildi sem þú stillir virka þannig fyrir þetta skjal og meðan þú lokar ekki Writer. Þau virka ekki lengur ef þú lokar skjalinu eða Writer og þau gilda ekki fyrir önnur skjöl sem þú opnar. Sjálfgefin gildi eiga við alla teiknihluti nema textahluti.
|
1 Strik 2 Örvagerð 3 Strikgerð 4 Strikbreidd |
5 Striklitur 6 Svæði 7 Svæðisstíll – fylling 8 Snúa |
9 Í forgrunn 10 Í bakgrunn 11 Setja fremst 12 Færa aftast |
13 Samröðun 14 Breyta akkeri 15 Afhópa 16 Hópa |
Til að breyta eiginleikum teiknihlutar sem búið er að teikna:
- Veldu hlutinn.
- Gerðu eins og lýst var hér fyrir ofan.
Þú getur einnig skilgreint staðsetningu og stærð, snúning og halla og rúnning á hornum teiknihlutarins:
- Hægri-smelltu á teiknihlutinn og veldu Position and Size af valmyndinni sem upp kemur. Þá sést talgluggi fyrir staðsetningu og stærð.
- Veldu þá eiginleika sem þú vilt breyta.
Stærð teiknihlutar breytt
Það sama á við um stærðarbreytingar á teiknihlutum og öðrum hlutum. Hluturinn er valinn með því að smella á hann. Síðan er tekið í eitt af grænu handföngunum átta sem sjást í kringum hann og þau dregin á nýjan stað. Til að stækka eða minnka hlutfallslega er eitt hornhandfangið notað ásamt SHIFT lyklinum á lyklaborðinu.
Fyrir nákvæmari stjórnun á stærð hlutar er valið Format > Object > Position and Size af valstikunni. Notaðu talgluggann fyrir staðsetningu og stærð til að stilla breidd og hæð sérstaklega. Ef hakað er við Keep ratio, þá breytast málin tvö þannig að upphaflegt hlutfall myndarinnar helst.
Teiknihlutar hópaðir
Til að hópa teiknihluti saman:
- Veldu einn hlut, haltu síðan niðri <SHIFT> lyklinum á lyklaborðinu og smelltu á aðra hluti sem þú vilt hópa saman. Merkikassinn stækkar þannig að hann inniheldur alla hlutina.
- Þegar búið er að velja alla hlutina lætur þú músina voka yfir einum þeirra og velur Format > Group > Group af valstikunni eða hægri-smellir og velur Group > Group af valmyndinni sem kemur upp.
Athugaðu Það er ekki hægt að hópa fasta eða tengda mynd með teiknihlutum.



