Unnið með dálka og línur

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Efnisyfirlit

Dálkur eða lína sett inn

Hægt er að bæta við línum og dálkum á nokkra vegu.

Að bæta inn einni línu eða einum dálk

Hægt er að setja inn staka línu eða dálk með Insert valmyndinni á valslánni:

  1. Vertu með fókusinn á þeirri línu sem á að vera neðan við nýju línuna eða í þeim dálk sem á að vera hægra megin við nýja dálkinn.
  2. Veldu annaðhvort Insert > Columns til að bæta við dálki eða Insert > Rows til að bæta við nýrri línu.
Athugaðu
Þegar sett er inn stök lína lendir nýja línan fyrir fyrir ofan þá línu sem
fókusinn er á. Nýr dálkur lendir vinstra megin við þann dálk sem fókusinn er á.

Einnig er hægt að bæta við línu eða dálki með músinni:

  1. Hægri-smelltu á dálkhausinn eða línuhausinn þar sem þú vilt bæta við línu eða dálk.
  2. Veldu Insert Rows (setja inn línu) eða Insert Columns (setja inn dálk)

Margar línur eða dálkar

Hægt er að bæta við mörgum línum eða dálkum í einu.

  1. Merktu þann fjölda af línum eða dálkum sem þú vilt bæta við með því að draga músina yfir dálk- eða línuhausana.
  2. Notaðu svo sömu aðferðir og þegar stakri línu var bætt inn.

Dálki eða línu eytt

Hægt er að eyða stökum línum og dálkum eða mörgum í einu.

Að eyða einni línu eða dálk

Hægt er að eyða stakri línu eða dálk með músinni:

  1. Veldu línuna sem þú vilt eyða.
  2. Hægri-smelltu á haus línunnar eða dálksins.
  3. Veldu Delete Columns (Eyða dálkum)eða Delete Rows (eyða línum) í valmyndinni sem birtist.

Að eyða mörgum línum eða dálkum í einu

Hægt er að eyða mörgum dálkum eða línum í einu.

  1. Veldu þær línur eða dálka sem þú vilt eyða með því að draga músina yfir hausana.
  2. Eyddu svo með sömu aðferð og einni línu er eytt.