Unnið með Glærumeistara
Úr OpenOffice.is
Impress inniheldur 28 tilbúna glærumeistara. Það er hægt að sjá þá í Master Pages hlutanum í Verkglugganum (sjá mynd 1). Master Pages hlutinn skiptist síðan niður í þrjá flokka: stílar sem eru notaðir í þessari glæru (Used in This Presentation), stílar sem hafa verið nýlega notaðir (Recently Used) og þeir stílar sem eru til taks (Available for Use). Smelltu á + táknið við hliðina á þeim flokki sem þú vilt fá aðgang að og þá færðu sýnishorn af glærumeisturum, eða smelltu á – táknið til að slökkva á sýnishornum.Allir þeir glærumeistarar sem eru í Til taks flokknum(Available for Use) eru búnir til úr forsniði sem vistast undir sama nafni. Ef þú hefur búið til þitt eigið forsnið, eða bætt við forsniðum úr öðrum forritum þá eiga þeir glærumeistarar að koma fram í þessum flokki.
Efnisyfirlit |
Að búa til glærumeistara
Þú getur búið til nýjan glærumeistara með því að fylgja sömu leið og þegar þú breytir einhverju í forpökkuðum glærumeistara.
Til að byrja þá þarftu að virkja glærumeistara með því að smella á View > Master > Slide Master. Á Meistarastikunni skaltu smella á New Master hnappinn.
Þá birtist önnur glæra í glæruglugganum. Þú getur breytt þessum glærumeistara eins og þú vilt. Það er ráðlegt að endurnefna þennan glærumeistara með því að hægri smella á glæruna í glæruglugganum og velja Rename master í valmyndinni sem birtist.
Þegar þú ert búinn að þessu skaltu loka þessum glugga til að komast aftur í venjulegt vinnuumhverfi.
Að nota glærumeistara
Athugaðu að Master Pages hlutinn sé opinn í verkglugganum.
Til að virkja glærumeistara til notkunar í glærusýningu þá skaltu smella á viðeigandi stíl í listanum.
Til að virkja glærumeistara til notkunar í staka glæru eða glærur:
- Veldu þær glærur sem þú vilt breyta í glæruglugganum.
- Hægri smelltu á þann stíl sem þú vilt nota í verkglugganum og smelltu á Apply to Selected Slides á valmyndinni sem birtist.
Að hlaða viðbótar glærumeisturum
Stundum er nauðsynlegt að blanda saman mörgum glærumeisturum í glærusýningu sem notar ekki sama sniðmátið. Til dæmis gæti þurft að nota allt öðruvísi umbrot á fyrstu glæruna í glærusýningu eða það þyrfti að bæta glæru við glærusýningu sem er ekki búin til í sama forriti.
Glæruhönnunarglugginn (Slide Design) gerir þér kleift að gera þetta. Þú getur opnað þennan glugga með því að smella á Format > Slide Design í valstikunni eða þú getur hægri smellt á glæru í glæruglugganum. Aðalvalmyndin í þessum glugga sýnir þá glærumeistara sem eru til taks. Til að bæta fleirum við:
- Smelltu á Load.
- Veldu það sniðmát sem þú vilt nota í glærumeistarann. Smelltu á Ok.
- Smelltu á Ok aftur til að loka þessum glugga.
Núna er hægt að sjá glærumeistarana í því sniðmáti sem þú valdir í verkglugganum undir Til taks (Available for Use) flokknum.
Athugaðu Þeir glærumeistarar sem þú hefur hlaðið upp munu líka verða til taks í næsta skipti sem þú opnar glærusýninguna. Ef þú vilt eyða ónotuðum glærumeisturum, þá skaltu haka við viðeigandi kassa í Glæruhönnunarglugganum.
Ráð Til að minnka stærðina á skrám sem eru í notkun þá er ráðlegt að nota sem fæsta glærumeistara.
Að breyta glærumeistara
Þessum atriðum er hægt að breyta í glærumeistara:
- Bakgrunni – lit, röstun, skyggingarstrikum eða punktafylki.
- Hlutum í bakgrunni – bæta við táknum eða skreytingum.
- Stærð, staðsetningu og innihaldi í haus og fæti á öllum síðum.
- Stærð, staðsetningu og lögun á römmum fyrir titla og innihald.
Áður en byrjað er að vinna í glærumeistara þá skaltu smella á Format > Styles and Formatting til að hafa Stíla og formunargluggann opinn á meðan þú ert að vinna í glærumeistaranum.
Til að velja glærumeistara til breytingar:
- Smelltu á View > Master > Slide Master í valstikunni. Þetta gerir þér kleift að vinna í glærumeistaranum.
- Smelltu á Master Pages í vinnuglugganum. Þetta gefur þér aðgang að tilbúnum glærumeisturum.
- Smelltu á þann glærumeistara sem þú vilt breyta í Til taks (Available) flokknum.
- Gerðu þær breytingar sem þú vilt gera, smelltu síðan á Close Master View hnappinn á Meistarastikunni.
- Vistaðu breytingar áður en lengra er haldið.
Aðvörun Allar þær breytingar sem gerðar eru á einni glæru þegar þú ert í Master View hamnum munu birtast á öllum þeim glærum sem nota þennan glærumeistara. Vertu alltaf viss um að þú sért búinn að loka Master View hamnum áður en þú heldur áfram að vinna í glærunum. Smelltu á View > Normal í valstikunni eða smelltu á Close Master View í verkfæraslánni til að loka hamnum.
Breytingar sem gerðar eru á stökum glærum í Normal View hamnum hafa ekki áhrif til breytinga á sjálfum glærumeistaranum eða öfugt.
Hins vegar geta komið upp atvik þar sem það er betra að breyta stílunum á glærum handvirkt frekar en að breyta þeim í Master View hamnum. Þá er hægt að velja viðeigandi atriði á glæru og smella á Format > Default Formatting í valstikunni.
Stundum er nauðsynlegt að prófa mismunandi umbrot (Layout) til að sjá hvað hentar best. Til að nota umbrot þá þarftu bara að opna Layout hlutann í verkglugganum og tvísmella á viðeigandi umbrot. Þú getur líka hægri smellt á Útlit og valið Apply to selected slide í valmyndinni sem birtist.
Að bæta texta við allar glærur
Sumir glærumeistarar eru með textakassa í fæti á glæru. Þú getur bætt við textakössum í glærumeistara sem virkar eins og haus eða fótur:
- Veldu View > Master > Slide Master í valstikunni.
- Smelltu á Textahnappinn í teiknislánni.
- Smelltu einu sinni og dragðu kassann þar sem þú vilt setja textann. Ritaðu eða límdu inn textann.
- Veldu View > Normal þegar þú ert búinn.
Til að bæta við svæði (Field) eins og til dæmis dagsetningu eða blaðsíðutölu í textakassa þá skaltu velja Insert > Fields og velja viðeigandi svið í valmyndinni. Ef þú vilt breyta sviði í glæru þá skaltu velja það og smella á Edit > Fields.
Þau svið sem þú getur notað í Impress eru:
- Dagsetning (föst).
- Dagsetning (uppfærist í hvert skipti sem skjalið er opnað).
- Tímasetning (föst).
- Tímasetning (uppfærist í hvert skipti sem skjalið er opnað).
- Höfundur (Nafn þess sem er skráður notandi á OpenOffice.org).
- Blaðsíðutölur (Númer á glærum).
- Skjalnafn.
Ráð Til að breyta útliti á númer/blaðsíðutölum(1,2,3 eða a,b,c eða i,ii,iii, osfrv.) blaðsíðusviðið, þá skaltu smella á Format > Page og síðan velja útlit í listanum í Layout Settings hlutanum. Til að breyta upplýsingum er varða höfund, þá skaltu smella á Tools > Option > OpenOffice.org > User Data

