Texti settur inn og formaður

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Allur texti á glærum er í textaboxum.

Hægt er að setja textabox á glæru:

  • Velja fyrirfram upp sett umbrot í Layouts hluta verkgluggans. Þessi textabox eru kölluð sjálfbrotin (AutoLayout) textabox.
  • Búa til textabox með textahnappnum.

Efnisyfirlit

Textabox úr Umbrotsrúðu notuð

Í venjulegri skoðun:

  1. Smelltu á textaboxið með orðunum Click to add text, Click to add an outline, eða annað svipað.
  2. Ritaðu eða límdu inn textann í textaboxið.

Textabox búið til með Textabox hnappnum

Í venjulegri skoðun:

Mynd 1: Textabox með gráum skástrikuðum ramma sem sýnir að það er valið ásamt hnappastiku fyrir texta
  1. Smelltu á Textahnappinn Mynd:Icon-text.jpg á teiknistikunni. Ef teiknistikan er ekki virk, þá er hún gerð virk með því að velja View > Toolbars > Drawing.
  2. Smelltu og dragðu út textabox á glæruna. Ekki hafa áhyggjur af stærð þess – það stækkar þegar þú ritar inn textann.
  3. Slepptu músarhnappnum þegar þú ert búinn. Ritunarbendill birtist í kassanum sem er nú í breytiham (grár skástrikaður rammi utanum textann eins og sýnt er á mynd 1).
  4. Ritaðu eða límdu textann þinn í textaboxið.
  5. Smelltu fyrir utan boxið til að taka valið af.

Hægt er að færa, stækka eða minnka og eyða textaboxum.

Athugaðu
Auk venjulegra textaboxa þar sem textinn er láréttur eins og hefðir og venjur
segja til um, þá mögulegt að setja inn textabox þar sem textanum er raðað
lóðrétt.  Þessi kostur er þó aðeins mögulegur þegar asísk tungumál eru
heimiluð í Tools > Options > Language Settings > Languages.
Smelltu á Mynd:Icon-lodrettur-texti.jpg hnappinn á teiknistikunni til að búa til lóðrétt textabox. 
Athugaðu að þegar verið er að rita textann, þá raðast hann lóðrétt.

Texti límdur inn

Hægt er að setja texta inn í textabox með því að afrita hann úr öðru skjali og líma hann inn í Impress. Viðkomandi texti gæti hins vegar ekki samræmst öðrum texta í skjalinu í útliti og uppsetningu. Þetta er hugsanlega það sem þú sækist eftir, en oftast vill maður samt ekki að glærusafnið sé bútasaumur úr alls konar mismunandi stafagerðum og stærðum, doppum og öðru. Það eru nokkrar aðferðir til að koma í veg fyrir þetta og tryggja samræmi og þessum aðferðum er lýst hér fyrir neðan.

Óformaður texti límdur inn

Það er venjulega góð regla að líma texta inn án uppsetningar og brjóta hann síðan um eftirá. Til að líma inn án uppsetningar er fljótlegast að nota CTRL+SHIFT+V á lyklaborðinu og síðan velja Unformatted text af talglugganum sem upp kemur, eða smella á litlu örina við hliðina á límingarhnappnum á standard hnappastikunni Líma og velja Unformatted text. Þessi óformaði texti tekur á sig útlínustíl þann sem er virkur þar sem ritunarbendillinn er staddur í sjálfbrotnu boxi eða sjálfgefinn stíl í venjulegu textaboxi.

Límdur texti formaður

Ef texti er límdur inn í sjálfbrotið svæði og maður vill gefa honum sama útlit og er á öðrum texta, þá þarf að setja viðkomandi útlínustíl á hann.

  1. Límdu textann þar sem þú vilt að hann komi. Ekki hafa áhyggjur af því að hann líti ekki rétt út: það á eftir að breytast.
  2. Veldu textann sem þú varst að líma.
  3. Veldu Format > Default formatting af valstikunni
  4. Notaðu örvahnappana fjóra á Text Formatting hnappastikunni Mynd:Icon-text-format-arrows_26.jpg til að færa textann á réttan stað og rétt þrep í útlínunni. Hnappurinn með örinni sem bendir til vinstri færir textann upp um eitt þrep (t.d. úr Outline 3 í Outline 2), hægri örin lækkar textann um þrep og upp og niður örvarnar færa textann framar eða aftar í listann.
  5. Gerðu aðrar breytingar á textanum sem þú vilt gera (t.d. breyta útliti, dálksetningum o.s.frv.)

Ef þú ert að líma textann inn í textabox, þá er samt hægt að nota stíla til að laga textann hratt og örugglega. Athugaðu að aðeins er hægt að setja eitt grafískt útlit á textann sem límdur var. Til að gera það:

  1. Límdu textann á þann stað sem þú vilt hafa hann.
  2. Veldu textann sem þú varst að líma.
  3. Veldu þann grafíska stíl sem þú vilt nota
  4. Gerðu aðrar umbrotsbreytingar á textanum eftir þörfum
Ráð
Framsetningarstílar eru mikið frábrugðnir stílum í Writer og eru settir á
á annan hátt.

Punktalistar og tölulistar búnir til

Aðferðin við að búa til punkta- eða tölulista er mismunandi eftir því hvernig textabox er um að ræða, þó tólin sem notuð eru við að stjórna listunum og útliti þeirra séu þau sömu.

Í textaboxum sem Impress býr til sjálft (kölluð sjálfbrotin eða AutoLayout), eru útlínustílarnir sem sjálfgefnir eru doppulistar, en í öðrum textaboxum þarf að búa doppulista til með einni aðgerð.

Listar búnir til í sjálfbrotnum boxum

Öll textabox í þeim uppsetningum sem fyrir hendi eru, eru þegar formuð sem doppulisti og því þarf aðeins að gera eftirfarandi til að fá slíkan lista:

  1. Á Layout rúðunni er valið umbrot sem inniheldur textabox. Þau eru auðþekkt á smámyndunum.
  2. Smelltu á textann Click to add an outline í boxinu.
  3. Ritaðu textann og ýttu svo á ENTER á lyklaborðinu til að fá nýja doppulínu.
  4. Sjálfgefið form er doppulisti. Aðferðin til að breyta úr doppulista í númeralista og öfugt er lýst á kaflanum „Útliti lista breytt“ hér á eftir.
Ráð
Ýttu á SHIFT + ENTER á lyklaborðinu til að byrja nýja línu án doppu eða tölu. 
Nýja línan er jafnt inndregin og sú fyrir ofan.  Líka er hægt að smella á
Doppur af/á hnappinn á textaformunarstikunni til að fá línu án doppu. 
Ef textaformunarstikan sést ekki, þá er hægt að gera hana virka með því að
velja View > Toolbar > Formatting á valstikunni.

Listar búnir til í öðrum textaboxum

Til að búa til lista í textaboxi þarf að gera þetta:

  1. Settu bendilinn í textaboxið.
  2. Smelltu á Doppur Af/Á hnappinn á textaformunarstikunni Mynd:Icon-bullets.jpg. Ef textaformunarstikan sést ekki, þá er hægt að gera hana virka með því að velja View > Toolbar > Formatting á valstikunni.
  3. Ritaðu textann og ýttu á ENTER á lyklaborðinu til að byrja nýja doppulínu.
  4. Sjálfgefinn listi er doppulisti. Aðferðin til að breyta úr doppulista í númeralista og öfugt er lýst á kaflanum „Útliti lista breytt“ hér á eftir.

Nýtt útlínuþrep búið til

  1. Ef þarf, ýttu á ENTER til að byrja nýja línu.
  2. Ýttu á dálklykilinn á lyklaborðinu (TAB). Í hvert sinn sem ýtt er á lykilinn, þá innfærist línan um eitt þrep. Til að fá línuna aftur upp um þrep er ýtt á SHIFT+TAB.

Í sjálfbrotnum boxum er færsla á milli þrepa tengd við breytingar á útlínustílum, þannig að annað útlínuþrep er Outline 2 stíllinn, það þriðja er Outline 3 stíll og svo framvegis.

Athugaðu
Ólíkt Writer, þá breytir maður ekki útlínuþrepinu með því að velja textann og síðan
smella á viðkomandi útlínustíl.  Vegna þess hvernig framsetningarstílar virka, þá
er ekki hægt að stjórna þeim þannig.

Útliti lista breytt

Hægt er að stjórna algerlega útliti lista og breyta doppugerðinni eða tölunum fyrir allan listann eða stöku línur í honum. Hægt er að gera allar þessar breytingar með Doppu- og númeralista talglugganum, sem er aðgengilegur með því að velja Format > Bullets and Numbering eða með því að smella á Doppu- og númerahnappinn Mynd:Icon-bullets-numbering.jpg á textaformunarstikunni.

Fyrir allan listann:

  1. Veldu allan listann eða smelltu á gráa rammann utanum textann þannig að grænu handföngin komi í ljós.
  2. Veldu Format > Bullets and Numbering eða smelltu á Doppu- og númerahnappinn Mynd:Icon-bullets-numbering.jpg.
  3. Á talglugga doppu- og númeralista eru fimm flipar: Doppur (bullets), Tölusetningar (Numbering type), Myndir (Graphics), Staðsetning (Position) og Breyta (Customize).
    • Ef þú vilt doppulista, þá velur þú viðkomandi doppustíl af þeim sex sem upp eru gefnir á Doppuflipanum.
    • Ef þú vilt hafa mynd sem doppu, þá getur þú valið slíka af listanum á Myndaflipanum.
    • Ef þú þarft númeralista, þá getur þú valið úr 6 slíkum á Tölusetningarflipanum.

Til að breyta einni línu í lista:

  1. Smelltu hvar sem er í línuna til að fá ritunarbendilinn í hana.
  2. Fylgdu skrefunum í leiðbeiningunum fyrir ofan.

Ef listinn var búinn til í sjálfbrotnu boxi, þá er einnig hægt að breyta listanum með því að breyta útlínustílnum. Breytingar á útlínustíl hafa áhrif á allar glærur sem nota hann. Stundum er það nákvæmlega það sem maður vill; stundum ekki, svo hér er vissara að stíga varlega til jarðar.

Tenglar