Texti formaður
Úr OpenOffice.is
Efnisyfirlit |
Stílar
Notkun á stílum er grundvallaratriði þegar Writer er notaður. Með stílum er auðvelt að forma skjalið á samræmdan hátt og fljótlegt er að breyta uppsetningunni á mjög einfaldan hátt. Oft, þegar maður formar útlit á skjali, þá er maður að nota stíla, hvort sem maður veit það eða ekki. Stíll er fyrirfram ákveðin stilling á ýmsum valkostum. Í Writer eru nokkrar tegundir stíla skilgreindar: fyrir stafi, efnisgreinar, síður og lista.
Efnisgreinar formaðar
Hægt er að gera margar mismunandi stillingar á efnisgreinum með því að nota hnappana á Formunarstikunni. Á mynd 26 hér fyrir neðan er formunarstikan sýnd með ýmsum hnöppum fyrir efnisgreinar bætt inn á. Útlit hnappanna gæti verið mismunandi eftir stýrikerfum, stærð, og því hvernig þeir eru stilltir í Tools > Options > OpenOffice.org > View.
Ráð: Það er sterklega mælt með því að þú notir efnisgreinastíla frekar en að setja upp hverja efnisgrein fyrir sig, sérstaklega í löngum og flóknum skjölum.
|
1. Opna Stíla- og formunargluggann 2. Setja á stíl 3. Jafna til vinstri 4. Miðja 5. Jafna til hægri |
6. Fylla 7. Línubil: 1 8. Línubil: 1.5 9. Línubil: 2 10. Númeralisti á/af |
11. Doppulisti á/af 12. Minnka inndrátt 13. Auka inndrátt 14. Talgluggi fyrir efnisgreinaformun |
Á mynd 2 sést hvernig texta er raðað á mismunandi hátt:
Stafir formaðir
Hægt er að setja alls konar uppsetningar á tákn og stafi með því að nota formunarstikuna. Á mynd 28 sést þar sem búið er að bæta við nokkrum hnöppum sem eiga við tákn og stafi.
Ráð Það er sterklega mælt með því að þú notir stíla á tákn og stafi, frekar en að setja upp hvern staf fyrir sig.
Útlit hnappanna gæti verið mismunandi eftir stýrikerfum, stærð, og því hvernig þeir eru stilltir í Tools > Options > OpenOffice.org > View.
| 1 Opna Stíla- og formunargluggann
2 Setja á stíl 3 Stafagerð 4 Stafastærð 5 Feitletrun |
6 Skáletrun 7 Undirstrik 8 Uppskrift 9 Niðurskrift 10 Stækka letur |
11 Minnka letur 12 Stafalitur 13 Yfirstrikun 14 Bakgrunnslitur 15 Talgluggi fyrir stafaformun |
Ráð Til að fjarlægja formun er textinn valinn og síðan Format > Default Formatting, eða með því að hægri-smella og síðan velja Default Formatting (sjálfgefin formun).
Sjálfformun
Hægt er að stilla Writer þannig að hann sjálfformi hluta skjals eftir því hvað er valið á Sjálfformunarglugganum (Tools > AutoCorrect > Options).
Ráð Ef eitthvað óvenjulegt gerist í uppsetningu skjalsins, þá er það þarna sem líklegast er að orsökin liggi.
Nokkrar algengar óvæntar og óvelkomnar formunarbreytingar:
- Lárétt strik. Ef maður ritar þrjú eða fleiri bandstrik (---), undirstrik (___) eða samasem merki (===) á línu og ýtir síðan á ENTER lykilinn, þá kemur lárétt strik í staðin fyrir táknin. Þetta strik er í raun botn-ramminn á næstu efnisgrein á undan.
- Doppulistar og númeralistar. Doppulisti verður til ef maður ritar bandstrik (-), stjörnu (*) eða plúsmerki (+) og bil í upphafi efnisgreinar. Númeralisti verður til ef maður ritar tölu og punkt (.) og síðan bil eða ýtir á dálklykil (tab) í upphafi efnisgreinar. Sjálfvirk númerun er aðeins sett á efnisgreinar sem formaðar eru með Default, Text body eða Text body indent efnisgreinastílum.
Til að slökkva á sjálfformun er valið Format > AutoFormat og síðan er valið eða af-valið á valmyndinni.
Númeralistar og doppulistar
Hægt er að búa til númeralista og doppulista á ýmsan hátt:
- Nota sjálfformun eins og lýst var hér á undan.
- Nota listastíla.
- Nota tölu- og doppulistahnappana á hnappastikunni (sjá mynd 4). Þessari aðferð er lýst nánar hér.
Til að búa til númeralista eða doppulista þarf að velja efnisgreinarnar í listanum og síðan smella á viðkomandi hnapp á hnappastikunni.
Athugaðu Það er hverjum í sjálfsvald sett hvort hann ritar efnið inn fyrst og gerir síðan listann eða hvort hann velur listann fyrst og ritar síðan inn efnið.
Doppu- og tölulistastikan
Hægt er að búa til hreiðraða lista (þar sem eitt eða fleiri listaatriði eru listi eða útlína) með því að nota hnappana á Doppu- og tölulistastikunni (Bullets and Numbering toolbar) (sjá mynd 4). Hægt er að færa atriði upp eða niður listann, búa til undiratriði og jafnvel breyta útliti doppanna. Veldu View > Toolbars > Bullets and Numbering til að sjá stikuna.
Útlit hnappanna gæti verið mismunandi eftir stýrikerfum, stærð, og því hvernig þeir eru stilltir í Tools > Options > OpenOffice.org > View.
|
1 Doppulisti Á / Af 2 Númeralisti Á / Af 3 Númerun Af 4 Hækka um eitt þrep 5 Lækka um eitt þrep |
6 Hækka (eitt þrep) með undiratriðum 7 Lækka (eitt þrep) með undiratriðum 8 Setja inn ónúmerað atriði 9 Færa ofar 10 Færa neðar |
11 Færa upp innan undiratriða 12 Færa niður innan undiratriða 13 Byrja númerun upp á nýtt 14 Doppur og númerun |
Skipting orða á milli lína
Til að ræsa eða taka af sjálfvirka bandstrikun:
- Ýttu á F11 lykilinn á lyklaborðinu til að opna Stílar og formun talgluggann (Styles and Formatting) (sjá mynd 5).
- Á Efnisgreinasíðu gluggans hægri-smellir þú á Default í listanum og velur Modify.
- Í talglugganum fyrir Efnisgreinastíla ferð þú á Text Flow flipann (sjá mynd 6).
- Undir Hyphenation velur þú eða tekur af Automatically kostinn. Smelltu á OK til að vista.
Athugaðu Ef bandstrikun er virkjuð fyrir Default stílinn, þá hefur það áhrif á alla stíla sem eru byggðir á honum. Þú getur breytt hverjum hinna, þannig að þetta virki ekki þar; t.d. er ekki líklegt að þú viljir bandstrik í fyrirsagnir. Stílar sem ekki eru byggðir á Default stílnum breytast ekki.
Það er einnig hægt að setja bandstrikastillingar undir Tools > Options > Language Settings > Writing Aids. Í Options reitnum neðarlega í glugganum er hægt að finna bandstrikunarreglurnar.
Athugaðu Bandstrikunarkostir sem stilltir eru í Writing Aids glugganum virka aðeins ef bandstrikun er heimiluð í efnisgreinastílum. Kostirnir „characters before line break“ og „characters after line break“ í Writing Aids glugganum yfirtaka stillingar á „characters at line end“ og „characters at line begin“ í efnisgreinastílum.
Til að setja inn skilyrt bandstrik í orð er nóg að ýta á CTRL+bandstrik á lyklaborðinu. Orðinu er þá skipt á milli lína ef það lendir aftast í línu, jafnvel þó sjálfvirk bandstrikun sé aftengd. Til að setja inn fast bandstrik sem ekki skiptir orði á milli lína er ýtt á CTRL+SHIFT+bandstrik.


