Töfluskjöl og reitir
Úr OpenOffice.is
Calc vinnur með stór töfluskjöl. Töfluskjölunum er skipt niður í blöð og á hverju blaði er tafla sem er með reiti sem raðast í línur og dálka.
Í reitina koma svo gögnin sem við erum að vinna með s.s. texti, tölur og formúlur. Hvert töfluskjal getur innihaldið mörg blöð og á hverju blaði geta verið 65.536 línur og 1.024 dálkar eða samtals 67.211.264 reiti.

