Töflur búnar til
Úr OpenOffice.is
Þegar þarf að setja upp gögn á töfluformi, þá er einfalt að setja inn töflu beint á glæruna á einn af eftirfarandi vegu:
- Notaðu Insert > Table af valstikunni.
- Með Töfluhnappinum á aðal hnappastikunni
.
- Með Table Design hnappinum á töflustikunni.
- Með því að velja tilbúna töflu af stílalistanum á Table Design hluta verkgluggans.
Athugaðu Ef valið er úr stílasafninu á Table Design hlutanum í verkglugganum, þá verður til tafla byggð á þeim stíl. Ef þú býrð til töflu með annarri aðferð, þá er samt hægt að setja stíl á hana síðar.
Þegar búið er að búa til töflu ætti Töflustikan að birtast. Ef hún gerir það ekki, þá er hægt að kalla hana fram með því að velja View > Toolbars > Table. Á Töflustikunni eru margir sömu hnappar og á töflustikunni í Writer nema að það vantar stafrófsröðum og samlagningu. Ef þú þarft á slíkum aðgerðum að halda, þá er betra að sækja töflureikni úr Calc (rætt síðar).
Þegar taflan er komin, þá er hægt að breyta henni og laga á svipaðan hátt og í Writer: bæta við og eyða línum og dálkum, stilla breidd og pláss í reitum, setja strik, bakgrunnslit o.s.frv.
Með því að breyta stíl töflunnar frá Table Design hluta verkgluggans er fljótlegt að breyta útliti töflunnar miðað við þann stíl sem þú velur. Hægt er að bæta áherslum við dálkhausa eða samtalslínu ásamt fyrsta og síðasta dálki töflunnar og láta mismunandi liti koma á dálka eða línur.
Þegar búið er að búa til töfluna, þá er svipað verk að setja gögn í reitina eins og þegar texti er ritaður í textabox. Smelltu í reitinn sem þú vilt rita í og byrjaðu að rita. Til að fara fljótt á milli reita er hægt að nota þessa lykla á lyklaborðinu:
- Örvalyklarnir færa bendilinn í næsta reit ef hann er tómur, en annars að næsta staf.
- Dálklykillinn (TAB) hoppar yfir í næsta reit til hægri og hoppar þá yfir texta sem er í reitnum sem hoppað er úr. SHIFT+TAB gerir þetta sama til vinstri.

