Stærð og staðsetning myndrita
Úr OpenOffice.is
Hægt er að breyta stærð allra atriða í myndriti á sama tíma á tvo vegu: gagnvirkt eða með því að nota talglugga fyrir stærð og staðsetningu. Best er að nota sambland beggja: gagnvirkt til að fá nokkurn vegin þá stærð sem maður vill og síðan í talglugganum til að stilla nákvæmlega stærð og staðsetningu.
Til að breyta stærð myndrits gagnvirkt:
- Smelltu einu sinni á myndritið til að velja það. Nú koma græn breytihandföng á myndritið.
- Til að stækka myndritið eða minnka er smellt á eitt handfangið í horni þess og það dregið til. Til að halda hlutföllum er SHIFT lyklinum haldið niðri á meðan.
Til að færa myndrit gagnvirkt:
- Smelltu einu sinni á myndritið til að velja það. Nú koma græn breytihandföng á myndritið.
- Láttu músabendilinn voka yfir myndritinu. Þegar hann breytist í fjórfalda ör, þá getur þú smellt og dregið myndritið til.
- Slepptu músarhnappnum þegar myndritið er komið á réttan stað.
Talguggi fyrir stærð og staðsetningu
Til að breyta stærð eða færa myndrit með Position and Size talglugganum:
- Smelltu einu sinni á myndritið til að velja það. Nú koma græn breytihandföng á myndritið.
- Hægri-smelltu og veldu Position and Size af sprettivalinu.
- Gerðu þær breytingar og stillingar sem þarf á talglugganum. Fliparnir Rotation og Slant & Corner Radius eru ekki virkir.
Staðsetningin er skilgreind sem X,Y hnit miðað við fastan grunnpunkt (Base point), sem venjulega er staðsettur í efra horni til vinstri í teiknisvæðinu. Ef maður vill, þá er hægt að breyta þessum punkti til bráðabirgða til að gera staðsetningu og stærðarbreytingar auðveldari (smelltu á valhnappinn sem sýnir staðsetningu grunnpunktsins í efri hluta gluggans til hægri – sá efri er fyrir staðsetningu, hinn fyrir stærð).
Mögulegar staðsetningar grunnpunkts eru þær sömu og handföngin á myndritinu ásamt miðpunkti. Þessi breyting á grunnpunktinum er bara virk þar til maður lokar þessum talglugga: þegar maður lokar glugganum, þá endursetur Calc punktinn á efra horn til vinstri.
Ráð Hakið við Keep ratio er mjög gagnlegt. Hakaðu í það til að halda hlutföllum á hæð og breidd myndritsins á meðan breytingar eru gerðar.
Hægt að verja bæði stærð og staðsetningu þannig að ekki er hægt að breyta þeim óvart. Hakað er við viðkomandi atriði á talglugganum.
Ráð Ef ekki er hægt að færa myndrit, þá skaltu athuga hvort staðsetningin er varin!

