Spássíur

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Sjálfgefnar spássíur (e. margin) í Writer eru 2 sentímetrar. Einu sinni var talið að til að uppsetning væri rétt, þá ætti spássían að vera sem svarar einni tommu, eða 2,54 sentímetrar. Þegar próf eru samin þarf oft að nota meira af pappírnum og minnka spássíurnar. Hér skal nú lýst hvernig það er gert:

Smelltu á Format í valstikunni og veldu Page...

Mynd:Writer-spassiur-01.jpg

Smelltu á Page flipann á glugganum sem kemur upp og þá sérðu að tölurnar fyrir spássíurnar eru í neðra horninu til vinstri:

Mynd:Writer-spassiur-02.jpg

Breyttu tölunum fyrir vinstri, hægri, efri og neðri spássíur. Ekki er nauðsynlegt að setja inn mælieiningu, þar sem Writer er venjulega stilltur á sentimetra og talan sem gefin er verður því tekin sem sentimetrar. Hér er ég búinn að setja inn spássíu upp á 1,5 sm allan hringinn:

Mynd:Writer-spassiur-03.jpg

Hægt er að setja hvaða tölu sem maður vill, en þó ber að vara við því að sumir prentarar þurfa ákveðið pláss neðst eða til hliðar á blaðinu til að geta klárað prentun. Einnig er gott að taka það með í reikninginn að haus og fótur koma sjálfkrafa á sama stað og spássían byrjar og taka því pláss frá síðunni.

Athugaðu að breytingar á spássíu á þennan hátt eiga bara við viðkomandi skjal. Sjálfgefna gildið er enn 2 sentimetrar.

Spássíumerking

Writer sýnir sjálfgefið hvar textasvæðið endar og spássían byrjar með því að setja dauft grátt strik. Hann sýnir líka hvar hausar og fætur eru með þessum sömu strikun:

Mynd:Writer-spassiur-05.jpg

Sumir vilja alls ekki hafa þessi strik og þess vegna skal nú bent á hvernig má láta þau hverfa:

Smelltu á View á valstikunni og veldu þar Text Boundaries. Við það fer hakið af þessu atriði á valmyndinni og spássíustrikin hverfa.

Mynd:Writer-spassiur-06.jpg Einfalt !

Tenglar