Skoðun
Úr OpenOffice.is
Í þessu skjali verður fjallað um þá fimm skoðunarhami sem finna má í Impress.
Efnisyfirlit |
Venjuleg skoðun
Venjuleg skoðun, eða Normal view er það umhverfi sem maður notar venjulega við að vinna glærusýningu. Það er þarna sem maður hannar glærusýninguna, setur inn texta, myndir og hreyfingu.
Til að setja glæru á vinnusvæðið í Venjulega skoðun er smellt á smámynd af henni á glæruglugganum eða með því að nota Lóðsinn.
Til að velja glæru í Navigator er hægt að renna niður listann þar til rétta glæran er fundin og tvísmella á hana.
Útlínuskoðun
Útlínuskoðun (sjá mynd 1) inniheldur allar glærurnar í sýningunni í réttri númeraröð. Hún sýnir titla, doppulista og númeralista á hverri glæru. Aðeins texti sem er í sjálfgefnum textareitum er sýndur, svo að ef á glærunum eru aðrir textareitir eða teiknihlutir, þá eru þeir ekki listaðir. Nöfn glæra eru heldur ekki sýnd.Útlínuskoðun er notuð í tvennum tilgangi.
- Til að gera breytingar á texta glæranna
- Hægt er að bæta við og eyða texta eins og maður væri í venjulegri skoðun.
- Hægt er að færa efnisgreinar í glæru upp eða niður með örvahnöppunum (Færa upp eða Færa niður) á textastikunni.
- Hægt er að breyta stöðu efnisgreina á glæru með því að nota örvarnar til hægri eða vinstri á textastikunni (Hækka eða Lækka)
- Hægt er að færa efnisgrein og breyta röðun hennar með því að nota þessa fjóra örvatakka.
- Til að bera glærurnar saman við útlínuna (ef maður hefur búið slíka til fyrirfram). Ef maður sér að það vantar glæru, þá getur maður búið hana til beint í Útlínuskoðun (með því að ýta á ENTER lykilinn þegar bendillinn er fremst í fyrstu línu á glæru) eða með því að skipta yfir í venjulega skoðun og búa hana til, og síðan skipta aftur í útlínuskoðun til að halda áfram að yfirfara glærurnar. Ef glæra er ekki á réttum stað, þá er hægt að færa hana á sinn stað.
- Á glærurúðunni smelltu á glæruna sem þú ætlar að færa.
- Dragðu hana þangað sem þú vilt hafa hana og slepptu músarhnappnum.
Glósuskoðun
Notaðu glósuskoðun til að rita glósur við glærur.- Smelltu á Notes flipann á vinnusvæðinu (sjá mynd 166).
- Veldu glæruna sem þú ætlar að gera glósur við
- Smelltu á glæruna í glærurúðunni, eða
- Notaðu Previous Slide og Next Slide hnappana til að finna glæruna sem þú vilt nota.
- Smelltu á orðin Click to add notes í textareitnum fyrir neðan glæruna og byrjaðu að rita inn glósurnar.
Hægt er að stækka og minnka glósusvæðið með því að nota grænu breytingahandföngin og líka færa það með því að setja bendilinn á jaðarinn og smella og draga. Til að gera breytingar á textastílum má ýta á F11 lykilinn á lyklaborðinu til að opna stílagluggann
Röðunarskoðun
Röðunarskoðun inniheldur smámyndir af öllum glærunum (sjá mynd 3). Notaðu þessa skoðunaraðferð til að vinna með bunka af glærum eða bara eina í einu. Hægt er að breyta fjölda glæra í hverri röð.- Hakaðu við á View > Toolbars > Slide View til að glæruskoðunarstikan (sjá mynd 4) sé virk.
- Stilltu hversu margar glærur þú vilt sjá í hverri röð (mest 15).
- Þegar þú ert búinn að stilla fjölda glæra í röð, þá smellir þú á View > Toolbars > Slide View til að láta þessa stiku hverfa.
Til að færa glæru í glærusafni í röðunarskoðun:
- Smelltu á glæruna. Á hana kemur þykkur svartur rammi.
- Dragðu hana og slepptu henni á þeim stað sem þú vilt hafa hana.
- Þegar þú dregur glæruna, þá birtist svört lóðrétt lína öðrum hvoru megin við glæruna.
- Dragðu glæruna þar til þessi lína er á þeim stað þar sem þú vilt fá glæruna
Til að velja bunka af glærum er hægt að nota eina af þessum aðferðum:
- Með CTRL lyklinum á lyklaborðinu: Smelltu á fyrstu glæruna sem þú vilt velja og haltu síðan niðri CTRL lyklinum á meðan þú velur hinar glærurnar sem þú vilt vinna með.
- Með SHIFT lyklinum: Smelltu á fyrstu glæruna sem þú vilt velja, haltu niðri SHIFT lyklinum og smelltu á síðustu glæruna sem þú vilt velja. Nú eru valdar allar glærurnar á milli þessara tveggja.
- Með músinni: Smelltu við hliðina á fyrstu glærunni sem þú vilt velja. Haltu niðri músarhnappnum og dragðu músarbendilinn aftur fyrir síðustu glæruna sem þú vilt velja. Púnktalína sýnir þér hvað þú ert búinn að velja og þykkur svartur rammi kemur á allar glærurnar sem þú valdir þegar þú sleppir músarhnappnum.
Til að færa bunka af glærum:
- Veldu glærur.
- Dragðu þær þangað sem þú vilt hafa þær og slepptu músarhnappnum þar. Sama lóðrétta línan sýnir þér hvar bunkinn verður settur.
Athugaðu Val á bunka af glærum er alltaf í ferhyrning. Glærur sem ekki falla innan þessa ferhyrnings er ekki hægt að velja með þeim.
Hægt er að vinna með glærur í röðunarskoðun á sama hátt og í glærurúðunni. Til að gera breytingar er hægri-smellt á glæru og eitt af eftirfarandi valið af sprettivalmynd:
- Bæta við glæru á eftir þeirri sem valin er.
- Eyða glærunni sem búið er að velja.
- Breyta umbroti glærunnar.
- Breyta glæruskiptum.
- Ef breyta á einni glæru, þá er smellt á hana og síðan viðkomandi skipting sett á.
- Ef breyta á mörgum glærum, þá eru þær valdar og skiptin sett á allar í einu.
- Fela glæru. Faldar glærur koma ekki fram í sýningunni.
- Afrita, klippa eða líma glæru.
Dreifildaskoðun
Dreifildaskoðun er notuð til að ákvarða hvernig glærusafnið prentast út til dreifingar. Smelltu á Handout flipann á vinnusvæðinu og veldu umbrot í Layouts í Verkglugganum. Boðið er upp á fimm mismunandi umbrot: 1, 2, 3, 4, 6, eða 9 glærur á síðu (sjá mynd 5).Til að prenta dreifildi:
- Veldu glærur í röðunarskoðun
- Veldu File > Print eða ýttu á CTRL+P á lyklaborðinu til að opna prentgluggann.
- Veldu Options neðst til vinstri í prentglugganum.
- Hakaðu við Handouts í Contents hlutanum og smelltu síðan á OK.
- Smelltu á OK til að loka prentglugganum.

