Sjálfformun á reitum og blöðum

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Hægt er að nota Sjálfformun (Auto Format) til að breyta reitum eða blöðum á fljótlegan hátt

Mynd 1: Sjálfformun valin
  1. Veldu þá reiti sem þú vilt forma, ásamt fyrirsögnum dálka og lína ef þær eru til staðar.
  2. Veldu Format > AutoFormat.
  3. Til að stilla hvaða hluti sjálfformunin hefur áhrif á (s.s. talnaútlit, stafagerð, staðsetningu texta) Veldu þá More og bættu við og taktu út það sem þú vilt.
  4. Smelltu á OK.

Ef engin breyting verður á lit stafanna þarftu líklega að velja View > Value Highlighting af valslánni.

Nýtt útlit skilgreint sem sjálfformun

Þú getur skilgreint nýtt útlit sem sjálfformun.

  1. Gerðu þær breytingar sem þú vilt.
  2. Veldu Edit > Select All.
  3. Veldu Format > AutoFormat. Add hnappurinn ætti að vera virkur.
  4. Veldu Add.
  5. Í Name reitinn skrifar þú svo nafnið á útlitinu.
  6. Smelltu á OK til að vista breytingarnar. Nýja útlitið ætti nú að vera í listanum.
Tenglar