Safnskjöl notuð
Úr OpenOffice.is
Safnskjöl eru yfirleitt notuð til að búa til lengri ritvinnsluskjöl eins og til dæmis bækur, ritgerðir, skýrslur; eða þegar margir eru að vinna mismunandi kafla eða aðra hluta stærra rits, svo að ekki þurfi að deila skjali. Safnskjal sameinar mismunandi texta í eitt stórt ritskjal og sameinar í leiðinni uppsetningu, efnisyfirlit (ToC) heimildarskrá, orðalista og annað slíkt.
Safnskjöl virka vel í Writer. Aftur á móti, þangað til maður er orðinn vanur að vinna með þau, þá geta þau virst ótraust og erfið.

