Sýning formuð

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Núna getur þú sett saman glærusýninguna út frá útlínunni þinni.

Aðvörun
Mundu að vista oft á meðan þú ert að búa til glærusýninguna til að koma í veg
fyrir óvænt tap á gögnum. Einnig er hægt að virkja AutoRecovery (Tools > Options
> Load/Save > General) sem gerir það að verkum skjalið vistast sjálfvirkt með
ákveðnu millibili.

Efnisyfirlit

Fyrsta glæran búin til

Fyrsta glæran er yfirleitt titilglæran. Fyrst þarft þú að ákveða hvaða umbrot hentar fyrir titilglæruna. Þú getur notað umbrot sem eru tilbúin í Impress í Layout hluta verkgluggans.

Ráð
Ef þú vilt vita nöfnin á mismunandi umbrotum getur þú fært músabendilinn yfir táknin
og þá birtast nöfnin. Ef það gerist ekki getur þú virkjað það með því að smella á
Tools > Options > OpenOffice.org > General > Help og hakað við Tips. Ef þú hakar við
Extended Tips, þá getur þú fengið ítarlegri upplýsingar um hlutina en ekki sjálf nöfnin
á hlutunum.

Veldu umbrot í verkfæraslánni með því að smella á það: Þá birtist það í vinnusvæðinu. Til að búa til titil þá smellir þú á Click to add title og skrifar titilinn á glærusýningunni. Ef þú vilt breyta forminu eða uppsetningu á titlinum þá getur þú ýtt á F11, hægri smellt á Title í vinnuglugganum sem kemur upp og á Modify.

Ef þú ert að nota sjálfvalið umbrot, þá smellir þú á Click to add text til að bæta við undirtitli.

Að bæta inn glærum

Mynd 1: Uppsetningar á glærum

Skrefin sem þarf að fylgja til að bæta inn glærum eru nokkurn veginn alveg þau sömu og þegar þú ert að búa til titilglæru. Þetta er ferli sem þarf að endurtaka fyrir hverja glæru. Þú þarft að vinna í Umbrotsglugganum nema þú sért að nota fleiri en einn glærumeistara. (Sjá mynd 1)

Fyrst skaltu setja inn allar þær glærur sem útlínan segir til um. Þegar þú ert búinn að því geturðu farið að setja inn ýmis konar brellur eins og til dæmis hreyfimyndir og glærubreytingar.

Mynd 2: Sýningastikan

Skref 1 – Settu inn nýja glæru. Þetta er hægt að gera á marga vegu – það er úr mörgu að velja.

  • Insert > Slide
  • Hægri-smelltu á glæruna og veldu Slide > New Slide á valmyndinni sem kemur upp.
  • Smelltu á Slide táknið í Presentation hnappastikunni. (Sjá mynd 2)

Skref 2 – Veldu það umbrot sem hentar þér.

Skref 3 – Breyttu því sem þú vilt breyta. Í þessu skrefi á glærusýningin að innihalda allt það sem er í glærumeistaranum og þá uppröðun sem þú hefur valið. Í þessu skrefi getur þú eytt öll því sem þú vilt ekki hafa í sýningunni eins og til dæmis myndum, og bætt við texta.

Aðvörun
Allar breytingar á umbroti og formi glærunnar skal gera í View > Normal
sem er sjálfvalið. 
  1. Eyddu öllu því sem þú vilt eyða.
    • Smelltu á hlutinn til að auðkenna hann (græn handföng sýna að hann er valinn).
    • Ýttu á DEL lykilinn til að eyða hlutnum.
  2. Nú getur þú bætt við þeim atriðum (texta,brellum) sem þú þarft í glærusýninguna.
    • Bættu við myndum í myndaramma ef uppröðunin býður upp á það:
      • Tvísmelltu á myndarammann. Þá birtist Insert picture glugginn.
      • Í þessum glugga geturðu sett inn mynd með því að smella á Browse og fundið þannig myndina sem þú vilt setja inn í glærusýninguna.
      • Þú getur forskoðað myndina með því að smella á Preview neðst í Insert picture glugganum.
      • Veldu myndina og smelltu á Open.
      • Stilltu stærðina á myndina með því að hægri-smella á hana. Veldu Position and Size í valmyndinni og hakaðu við Keep ratio ef það er ekki valið. Síðan geturðu lagað hæð og breidd.
    • Ef þú vilt bæta við mynd sem á ekki að koma í viðeigandi myndaramma í umbrotinu:
      • Smelltu á Insert > Picture > From File. Þá birtist Insert picture glugginn
      • Veldu myndina og smelltu á Open.
      • Færðu myndina á þann stað sem þú vilt.
      • Aðlagaðu hana að glærunni.
  3. Að bæta við texta í glæru: Ef glæran inniheldur texta, smelltu á Click to add an outline og þú getur skrifað textann.
Ráð
Stundum kemur fyrir að maður velur óvart rangt umbrot eða vill breyta því. 
Það er fullkomlega öruggt og verður ekki til þess að gögn tapast.

SKREF 4 – Til að bæta við glærum, endurtaktu skref 1 til 3.

Að breyta útliti á glærusýningu

Til að geta breytt bakgrunni og öðru er varðar útliti á glærusýningu þá er nauðsynlegt breyta glærumeistaranum eða velja annan glærumeistara.

Glærumeistari er glæra með ákveðin einkenni sem er notaður sem byrjunarpunktur til að búa til aðrar glærur. Þessi einkenni fela í sér bakgrunn, hluti í bakgrunni, texta sem þarf að vera formaður og allt annað er viðkemur bakgrunni.

Ráð
OOo notar þrjú mismunandi hugtök til að skilgreina þetta: Master slide,
Slide master og Master page. Við munum nota orðið glærumeistari.

Impress inniheldur 28 tilbúna glærumeistara sem hægt er að finna í verkglugganum (Master Pages). Þú getur einnig búið til þinn eigin glærumeistara og vistað hann á viðeigandi stað.

Að breyta glærusýningunni

Núna skaltu fara yfir alla glærusýninguna og svara nokkrum spurningum:

  1. Eru glærurnar í réttri röð? Ef ekki, þá þarf að færa þær.
  2. Væri betra að bæta við einhverjum glærum til að gera framsetninguna skýrari? Þá þarf að búa til fleiri glærur.
  3. Væri betra að nota atriðaskipti til að bæta glærurnar? Þá þarf að breyta glærum.
  4. Ættu einhverjar glærur að vera með öðruvísi atriðaskipti (Custom animation)? Þá þarf að breyta atriðaskiptunum.
  5. Eru einhverjar af glærunum óþarfar? Þá þarf að eyða glærum.
Ráð
Ef ein eða fleiri glærur eru óþarfar þá er best að fela glæruna eða glærurnar
og skoða glærusýninguna til að vera viss. Til að fela glæru skaltu hægri smella
á glæruna í glæruglugganum og velja Hide Slide í valmyndinni sem kemur upp. Þú
skalt ekki eyða glæru fyrr en þú ert búinn að fela glæruna, annars gætirðu þurft
að búa glæruna til aftur.

Þegar þú hefur svarað þessum spurningum þá geturðu gert viðeigandi breytingar. Það er best að gera þessar breytingar í Glæruröðun (Slide Sorter). Ef þú þarft síðan fleiri glærur þá geturðu búið þær til með því að fylgja skrefunum í „Að bæta inn glærum“.

Tenglar