Sérstök líming
Úr OpenOffice.is
Allir kunna að nota Afrita og Líma aðgerðina í Writer, enda virkar hún nákvæmlega eins í öllum ritvinnslum og flestum örðum forritum – stundum of vel. En það er til lítið notað afbrigði af Límingu sem gott er að nota þegar verið er að afrita af Internetinu eða þegar maður vill fá hrátexta inn í skjalið sitt en ekki allar uppsetningarnar sem fylgja honum. Þetta kallast Paste Special á ensku, og mætti þýða sem Líma spes eða Sérstök líming á íslensku.
Hérna hef ég til dæmis afritað smá texta af vef BBC og límt hann inn í skjal í Writer. Hann kemur þá inn með allar uppsetningar og myndir og dót sem finna má á vefnum. Þó þetta sé flott, þá langar mig ekki í þetta allt saman – ætla bara að nota textann.
Það er afskaplega auðvelt að líma bara textann inn og sleppa öllu hinu. Á Standard hnappastikunni er Límingarhnappurinn (paste). Við hliðina á honum er lítil ör. Ef maður smellir á örina kemur þetta upp:
Með því að velja Unformatted text fæ ég bara textann sem ég var að afrita og sleppi öllum uppsetningum:
Einfalt !


